Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Unglingur lést í aðgerð hersins

Tíu ára drengur var einnig drepinn á dögunum, þar sem hann spilaði fótbolta

Ísraelskir hermenn
Ísra­elskir her­menn Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint.

Palestínskur unglingur lést af sárum sem hann hlaut í hernaðar­aðgerð ísraelska hersins í Askar-flóttamanna­búðunum í Nablus. Atvikið er hluti af sívaxandi ofbeldi gegn óbreyttum borgurum á hernumda Vestur­bakkanum, á sama tíma og brothætt vopnahlé á Gaza-ströndinni veitir Palestínu­mönnum litla hvíld í rústum sprengdra hverfa.

Wafa-frétta­stofan greinir frá því að hinn átján ára gamli Mohammed Ahmed Abu Haneen hafi látist í morgun af sárum sem hann hlaut í árás herliðsins.

Ísraelskar hersveitir réðust einnig inn í bæinn Aqaba, norðan við Tubas á Vestur­bakkanum, og handtóku nokkra aðila fyrr í dag. Áður höfðu verið gerðar handtökur í Hebron og Tal.

Í yfir­lýsingu ísraelska hersins segir að 44 Palestínu­menn hafi verið hand­teknir á hernumdu svæðunum síðustu viku. Aðgerðirnar hafi verið framkvæmdar víða um svæðið og allir hand­teknir séu eftir­lýstir af Ísrael. Einnig hafi verið lagt hald á vopn og farið í yfirheyrslur í tengslum við aðgerðirnar.

Í síðustu viku var tíu ára drengur, Mohammad al-Hallaq, skotinn til bana af ísraelskum hermönnum þegar hann lék sér í fótbolta í ar-Rihiya, í Hebron-héraði.

Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum hafa meira en 1.000 Palestínu­menn verið drepnir af herliðinu eða land­ræningjum frá 7. október 2023 á Vestur­bakkanum, þar á meðal í Austur-Jerúsalem.

Fimmtungur fórnar­lambanna eru börn, þar á meðal 206 drengir og sjö stúlkur, að sögn SÞ. Þá eru meðal hinna látnu 20 konur og að minnsta kosti sjö fatlaðir einstaklingar. Tölurnar taka ekki til Palestínu­manna sem hafa látist í haldi Ísraels á sama tímabili.

Samkomulag um vopnahlé á Gaza-ströndinni í umsjón Bandaríkja­stjórnar hefur leitt til þess að nær 2.000 palestínskir fanga hafa verið látnir lausir úr ísraelskum fangelsum, margir þeirra með sýnileg ummerki um misþyrmingar.

Tugir líka Palestínu­manna sem hafa verið afhent fjöl­skyldum sínum hafa borið merki um alvarlegar limlestingar og framkvæmd henginga eða aftaka, að sögn heimilda.

Á sama tíma og herinn eykur átak sitt gegn Palestínu­mönnum, halda land­ræningjar áfram ofbeldi sínu nálægt Ramallah, þar sem palestínskt eignar­hald og mannvirki eru eyðilögð nánast daglega án afskipta yfirvalda og undir vernd hersins.

Að sögn Wafa kveiktu landnemar í nokkrum palestínskum ökutækjum á svæði í Deir Dibwan, austur af Ramallah, aðfara­nótt föstudags. Þá réðust þeir einnig á palestínska bændur sem voru að tína ólífur í landi þorpsins Beit Iksa, norð­vestur af Jerúsalem.

Á sunnudag réðst ísraelskur land­ræningi grimmilega á palestínska konu í Turmus Aya þegar hún var að safna ólífum.

Afaf Abu Alia, 53 ára, hlaut heila­blæðingu vegna árásarinnar.

„Árásin hófst með um tíu land­ræningjum, en stöðugt fleiri bættust við,“ sagði palestínskur sjónar­vottur við Al Jazeera. „Að lokum voru þeir líklega um 40 talsins, verndaðir af hernum. Við vorum mun færri og gátum ekki varið okkur.“

Samkvæmt upplýsingum frá Mannúðar­skrifstofu Sameinuðu þjóðanna (OCHA) hafa land­ræningjar ráðist á Palestínu­menn nærri 3.000 sinnum á síðustu tveimur árum á hernumdu Vestur­bakkanum.

Flóttamanna­aðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) sagði á föstudag að frá 7. október 2023 hafi „hertekni Vestur­bakkinn, þar á meðal Austur-Jerúsalems, markast af miklu og ört vaxandi ofbeldi“.

„Innlimun Vestur­bakkans heldur áfram með stöðugum hætti sem er gróft brot á alþjóða­lögum,“ sagði UNRWA, með vísan til útþenslu og viðurkenningar ólöglegra landnáma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár