Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Albert var rekinn vegna Samherja: „Ég er greinilega fyrir þessari sveitarstjórn“

Stöðvarfjörður
Stöðv­ar­fjörður Mynd: East.is

Albert Ó. Geirsson var rekinn úr hafnar­nefnd vegna Samherja árið 2004.

„Áhöfnin var á Horna­firði og annarsstaðar og ég hefði ekki fengið mannskap fyrr en klukkan 2 daginn eftir. Auk þess var laust pláss við ytri bryggjuna fýrir Björgólf, en sú stað­setning er erfið fyrir minni skip eins og Kambaröstina,“ sagði Albert í viðtali við DV árið 2004 um málið. Kambaröst, bátur Alberts, lá bundinn við bryggju í heimahöfn sinni á Stöðvar­firði. Albert var beðinn um að færa bátinn til þess að bátur Samherja kæmist að en að sögn Alberts var það ómögulegt á þeim tíma­punkti. 

„Þetta er eins og ef lögreglan stoppar þig á Miklubrautinni og segir þér að fara eftir einhverju „ritúali“ sem lögreglan fyrir­skipar. Menn þurfa að lúta yfir­valdinu. Í þessu tilfelli var Albert beðinn um að færa bátinn því það þurfti annar að fá stæðið og því var hafnað,“ sagði Guðmundur Þorgrímsson, oddviti Austur­byggðar, um málið.

Albert var hluti af hafnar­nefnd Austur­byggðar og var skipaður í hana sem fulltrúi Framsóknar­flokksins.

„Menn eru skipaðir inn í nefndir af Framsóknar­flokknum og ef menn vinna gegn hagsmunum sveitar­félagsins þá ber ekki viðkomandi listi ábyrgð á viðkomandi manni inni í nefnd og þá er þetta leiðin,“ sagði Guðmundur.

Í fréttinni er sagt frá því að Samherji hafi verið með stærstu útgerðina á Stöðvar­firði en Albert með þá næst­stærstu. Albert segir að brott­reksturinn úr nefndinni hafa komið sér á óvart

„Ég fékk símtal frá Ævari Ármanns­syni, formanni byggðar­ráðs, og hann spurði hvort ég væri tilbúinn að segja mig úr nefndinni. Ég sagði nei. Þá sagði hann að ég mætti búast við því að vera vikið úr nefndinni. Síðan hef ég ekki heyrt af þessu meira en skilst að þetta hafi komið fram á sveitar­stjórnar­fundi sem var útvarpað,“ sagði Albert um hvernig staðið hefði verið að málunum.

„Venjulega fær áhöfnin tækifæri til að komast til að færa bátinn og það ættu nú allir að skilja,“ sagði Albert. „Togari Samherja er skilinn eftir öðru hvoru við höfnina og öll áhöfnin fer til Akureyrar. Þá fara allir í burtu, þannig að það yrði ekkert hægt að færa hann. Ég lendi oft í að færa minna skipið mitt frá með litlum fyrirvara svo Samherji komist að, en menn verða að sýna tillitssemi og þolinmæði. Ég er greini­lega fyrir þessari sveitar­stjórn með þennan bát minn héma. Ef ég get ekki unnið í bát hérna milli vertíða eða þess háttar, þá bara er sjálffært að ég get ekki verið á staðnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni