Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Hættur að taka mark á „best fyrir“ dagsetningum

Björn Steinar Blumenstein vöru­hönnuður er meðvitaður um alvarleika matar­sóunar.

„Skilningur minn á þessu vandamáli hefur vaxið hægt yfir nokkurra ára tímabil, samhliða því hef ég tekið lítil skref til að bæta neyslu­venjur mínar. Ég hef því aldrei tekið drastíska ákvörðun til að minnka matarsóun, það var bara ferli sem þróaðist náttúru­lega. Í upphafi reyndi ég að sóa minna, í kjölfarið byrjaði ég að „dumpster dive-a“ reglulega og þá fyrst fór ég að hætta að taka mark á „best fyrir“ dagsetningum,“ útskýrir Björn en þess má geta að „dumpster diving“ snýst um að leita að ætum mat og öðrum verðmætum í rusla­gámum á bak við verslanir. Oft er um útlits­gallaðan mat að ræða eða matvæli sem eru að nálgast síðasta söludag.

„Í upp­hafi reyndi ég að sóa minna, í kjöl­farið byrj­aði ég að „dump­ster dive-a“ reglu­lega og þá fyrst fór ég að hætta að taka mark á „best fyrir“ dag­setn­ingum.“

Björn, sem er vöru­hönnuður, kveðst hafa fyrst byrjað að hugsa um afleiðingar matar­sóunar árið 2013. „Í vöru­hönnunar­námi sem ég stundaði var lögð gífurleg áhersla á umhverfis- og lofts­lagsmál. Þannig kynntist ég alvarleika málsins í fyrsta skipti. Matarsóun gengur í raun gegn öllu sem ég trúi á svo það var rökrétt að byrja á að breyta neyslu­venjum mínum.“

Það gleður Björn að sjá að fólk er almennt farið að leiða hugann að því hvernig má draga úr matarsóun. „Ég finn fyrir gífurlegri vakningu í tengslum við öll umhverfis- og loftslags­málum, ekki síst hvað varðar plast, kolefnis­losun og matarsóun. Umræðan í samfélaginu hefur breyst hratt og eingöngu til hins betra.“

Hann hvetur fólk til að kynna sér þau neikvæðu áhrif sem matarsóun hefur í för með sér. „Mikil­vægast er að líta ekki fram hjá vanda­málum sem við stöndum frammi fyrir, það er mikilvægt að halda sér upplýstum þó að þetta séu oft íþyngjandi og sorglegar stað­reyndir. Það er möguleiki á að knýja fram breytingar ef fólk er tilbúið að meðtaka stað­reyndir og er reiðubúið að bregðast við.“

Sjá einnig: Getum ekki borðað uppáhalds­matinn okkar á hverjum degi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Ofurkrúttleg íbúð í Þingholtunum komin á sölu
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá