Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Af sleikum og slúðri á fréttasíðum

Í síðasta blaði Mannlífs skrifaði samstarfs­maður minn, vinur minn að sunnan eins og ég kalla hann, fjölmiðla­pistil sem hann nefndi Er þetta frétt? Fjallaði pistillinn fjallaði um þá hvimleiðu spurningu sem oft má sjá í athuga­semdum við fréttum á netinu, Er þetta frétt? en þá er spyrjandinn að hneikslast á frétta­vali blaða­mannanna en oftar en ekki er um að ræða nauða­ómerkilegar slúður­fréttir.

Í fyrradag birtist sá pistill á vef Mannlífs og gat eiginlega ekki komið á betri tíma. Skrifuð var frétt á vefnum okkar um fátækan öryrkja sem eitt sinn dvaldi í Breiðuvík þar sem hann varð fyrir hrikalegu harðræði og viðbjóði. Hundur mannsins er veikur og þarf að fara í aðgerð en maðurinn hefur ekki efni á því. Tók maðurinn upp á því að selja hluti úr innbúinu og aðra lausamuni til að eiga fyrir aðgerðinni. Fréttin vakti töluverða athygli en tæplega 8.000 flettingar mældust á henni sem telst mjög fínt, ekkert stórkostlegt en ansi fínt. Á sama tíma og fréttin birtist, leit önnur frétt dagsins ljós hjá Mannlíf. Snéri hún að ljósmynd sem náðist af pari sem hefur verið mikið í fréttum á árinu, versla saman í Cosco. Þegar fréttinni var deilt á Facebook-síðu Mannlífs hrúguðust inn athuga­semdir þar sem fólk kepptist um að kvarta yfir fréttinni og hneikslast yfir því að þetta teldist almennt fréttnæmt. Þegar þetta er ritað hefur fréttinni verið flett um 40.000 sinnum.

Annað dæmi get ég nefnt. Eftir Verslunar­manna­helgina skrifaði ég tvær fréttir. Önnur þeirra tók mig allan daginn að gera, ég þurfti að senda tölvu­pósta, hringja í fólk, skrifa og bíða eftir svörum. Málið snérist um landsliðs­þjálfara unglings­stelpna í körfu­bolta sem var látinn hætta með liðið eftir að ásakanir bárust á hendur honum vegna óþægilegra samskipta. Hina fréttina tók mig ekki nema 10 mínútur að gera. Hún var um sleik sem poppstjarna fór í við ungan kærasta sinn á Þjóðhátíð. Viljið þið giska á hvor fréttin fékk meiri lestur? Laukrétt, Kossa­flensið fékk 38.700 flettingar en landsliðs­þjálfarinn 12.700.

Miðillinn er lítill þó hann sé lesinn nokkuð vel á landsvísu. Við fáum tekjur frá auglýsendum meðal annars og þó við reynum að skrifa innihalds­ríkar og afhjúpandi fréttir, verðum við að skrifa „ekki fréttir“ inn á milli til að bústa upp lesturinn, því það er það sem þú, lesandi góður, vilt lesa, tölurnar sanna það.

Mannlegt eðli er einfald­lega þannig að við erum forvitin um það hvað næsti maður er að gera, hvað nágranninn er að bardúsa í bílskúrnum og við hverja fræga fólki fer í sleik. Og stundum held ég að við ráðum bara ekki alltaf við fréttir af dýraníð, kynferðis­brotum, fátækt og fleira „óþægilegt“ og sækjum þess vegna í léttmeti á borð við sleik og slúður. Fyrir ykkur hin sem finnst þetta ekki vera fréttnæmt, sleppið að lesa og lesið „alvöru fréttir“ í staðinn, af nógu er að taka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning