Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Ólafur Guðmundsson, leikari og leiklistarkennari: Hjálpaði mér einna mest að fá að orða skömmina

Ólafur Guðmundsson
Ólafur Guð­munds­son

„Þetta er níunda ráðstefna alþjóðlegra samtaka, IDEA (IDEA International Drama/Theatre and Education Association), sem voru stofnuð árið 1992 og hafa það á stefnu­skránni að efla leiklist í menntunar­legu samhengi í skóla­starfi og einnig í mennta­legu samhengi úti í samfélaginu,“ segir Ólafur Guðmundsson, leikari og leiklistar­kennari, um ráðstefnuna sem haldin er hér á landi þessa dagana. „Það er FLISS, Félag um leiklist í skóla­starfi, sem tók þetta að sér og Mennta­vísindasvið Háskóla Íslands  auk þess sem þetta er haldið í samstarfi við Mennta­vísinda­stofnun sem er í rauninni bakhjarl starfs­manna Mennta­vísinda­sviðs í sambandi við skipulag á alls konar viðburðum og ráðstefnum.“

Ólafur er leikari að mennt og vann sem slíkur í 14 ár en söðlaði þá um og varð sér úti um kennslu­réttindi, kenndi í grunn­skólum í níu ár og síðan í 10 ár við framhalds­skóla og í dag er hann að kenna við Mennta­vísindasvið Háskóla Íslands og kennir tilvon­andi kennurum leiklist. „Þá eru það kennara­nemar sem velja sér leiklist sem kjörsvið og eru þá að sérhæfa sig í kennslu leik­listar í grunn­skólum og leik­skólum, bæði leiklist sem námsgrein auk þess sem leiklist er stundum notuð í tungu­málakennslu, samfélags­greinum og náttúru­greinum.“

Það er bland í poka á dag­skránni.

Fólk frá öllum heiminum er komið til landsins og segir Ólafur að það vinni við leiklist í menntunar­legu samhengi. „Það sem er sérstakt við þessa ráðstefnu er að þar er mikið af smiðjum auk fyrir­lestra af ýmsu tagi og svo eru haldnar kynningar á rann­sóknum og þróunar­verkefnum. Leik­sýningar eru á kvöldin. Þannig að það er bland í poka á dagskránni.“

Skapandi flæði

Áhugi Ólafs á leiklist kviknaði snemma og segist hann hafa verið farinn að setja upp leikrit ásamt vinkonum sínum á Laufás­borg sem þá kallaðist barna­heimili. Árin liðu og hann tók þátt í leikritum í grunn­skóla og svo í Mennta­skólanum við Hamrahlíð.

Ég held að leik­listin geti hjálpað fólki mjög mikið til þess að tengj­ast sjálfu sér.

„Ég var alltaf einhvern veginn viðloðandi leiklist og svo sótti ég um að komast í Leiklistar­skóla Íslands. Líklega tengist þetta þörf minni fyrir að vera innan um fólk og tengjast; vera með hópum og skapa með öðru fólki. Tjá mig og vera í skapandi flæði. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á hreyfingu og fór til dæmis í eins árs nám í Frakk­landi í Leiklistar­skóla Jaques Lecoq sem er skóli sem leggur áherslu á líkamann í leikhús­vinnu. Svo hef ég stundað mikið í gegnum árin Taijiog-jóga. Ég hef líka mikinn áhuga á skapandi dansi. Ég hef samt ekki lengur áhuga á að vera sjálfur að performera heldur vil ég laða fram í öðrum það sem fólk vill tjá og opna fyrir einhvers konar skapandi flæði sem og persónu­legan þroska í gegnum leik­listina. Það er aðallega þess vegna sem ég er í leiklistar­kennslu; ég held að leik­listin geti hjálpað fólki mjög mikið til þess að tengjast sjálfu sér og finna orkuna fyrir tjáningu sína og hreinlega opna og finna tengingar við tauga­kerfið og skynfærin og ná jarð­sambandi. Ég er mjög mikið að hugsa um það í dag.“

Kvíðinn

Ólafur sagðist halda að leik­listin geti hjálpað fólki. Hefur hún hjálpað honum og ef svo er – hvernig?

„Á mjög margan hátt; við að takast á við mig og glíma við það að vera manneskja. Einhvern veginn að læra að slaka á og lifa með sjálfum sér. Það er kannski aðallega það.“

Maður er að vinna með sjálfs­skoðun í gegnum hlut­verkið.

Takast á við sig. Hvað á hann við með því?

„Til dæmis að takast á við eigin­girni; ég er ekki númer eitt. Hlutirnir ganga alveg þótt ég sé kannski ekki alveg með þá á hreinu. Ég kannski fyllist kvíða yfir einhverjum hlutum. En ef ég bara geng inn í kvíðann og mæti og er í samskiptum við fólk þá fæ ég einhverja speglun á að þetta sé nú kannski alveg yfirstíganlegt og ég geti lært að deila því sem ég þarf að deila með öðru fólki í samskiptum. Svo nátt­úrlega speglar maður sig líka í þeim hlut­verkum sem maður er að vinna með og nátt­úrlega líka í leik­listinni er maður alltaf að vinna beint í gegnum hlutverk sem maður leikur. Maður er að vinna með sjálfs­skoðun í gegnum hlut­verkið. Maður er að skoða hvernig sálarlíf annarra persóna en um leið sitt eigið. Þannig að viðfangs­efnið er alltaf manneskjan.“

Hefur Ólafur barist við kvíða?

„Já, ég hef þurft að gera það í gegnum tíðina. Talandi um leiklist; hún getur líka verið uppspretta fyrir kvíða: Að glíma við það að performera fyrir framan fólk og fá gagnrýni og allir hafa skoðun á manni þegar maður stígur á svið og er í einhverju hlutverki. Þetta er eitthvað sem mjög margir og örugglega allir leikarar þurfa að glíma við og ég var alveg þar hérna áður en ég fór bara ákveðna leið í það að glíma við minn kvíða. Og kannski er ég þá að hjálpa fólki í dag að glíma við sinn kvíða í gegnum leiklistar­vinnu; að tengjast sjálfum sér í líkamanum og vinna með núvitund í gegnum hreyfingu. Það er það sem hefur hjálpað mér mjög mikið. Þannig að bara að stíga inn í kvíða­tilfinningar og einhvern veginn skora svolítið kvíðann sinn á hólm og gefast ekki upp gagnvart því að vera ofurseldur þessari tilfinningu.“

Ætla ég að láta sigra mig, láta þessa til­finn­ingu sigra mig, eða ætla ég að skora hana á hólm og halda áfram?

Ólafur er spurður um erfiðustu augna­blikin þegar hann hefur barist við kvíða.

„Ég hugsa að margir hafi upplifað svona augnablik þar sem maður veit ekki hvað maður á að gera; hvernig maður á að halda áfram og veit ekki hvað gerist næst. Þá er það spurningin um að taka ákvörðun eða það var allavega í mínu tilviki; ætla ég að láta sigra mig, láta þessa tilfinningu sigra mig, eða ætla ég að skora hana á hólm og halda áfram?“

Og Ólafur hélt áfram.

„Já, ég tók ákvörðun. Ég get alveg viðurkennt það að ég hef þurft að glíma við kvíða. Ég var kannski ekkert svakalega alvarlegt tilfelli en ég viðurkenni að ég hef þurft að glíma við kvíða og það hefur verið áskorun að takast á við það; mjög mikil oft og tíðum. Ég reyndi að miðla því til nemenda minna þegar ég kenndi í framhalds­skóla en sumir sögðust glíma við kvíða og þá sagðist ég hafa gert það líka og að ég skildi hvað þeir voru að ganga í gegnum og reyndi að hvetja þau áfram.“

Höfnun og einelti

Ólafur segir að það sem hafi mótað hann mikið sé glíma hans við að vera manneskja og glíman við tilfinningar sínar. „Kannski í rauninni mín glíma við að vera samkyn­hneigður og sú höfnun sem maður mætti á árum áður og í rauninni þessi felu­leikur sem mótaði unglings­árin mikið.“ Hann upplifði fordóma sem strákur og þeim fylgdu einelti í skóla. „Það voru móment í skóla sem voru svolítið erfið; þau sitja svolítið í manni. Það voru erfið móment þar sem maður upplifði ákveðna höfnun frá krökkunum sem voru með manni í skóla.“

Maður var hress og svona en svo var kannski allt í klessu undir niðri.

Hann segir að skömmin sem hann upplifði hafi verið sterk tilfinning; að finnast hann sjálfur ekki vera boðlegur og ekki eiga rétt og geta ekki komið hreint fram. „Ég hef svo sem aldrei verið beint óheiðarlegur en einhvern veginn alltaf að hliðra tilfinningum mínum og halda þeim til hlés og það hefur mótað allt.“ Hann segist þó hafa verið „survivor“; lenti aldrei undir. „Maður var hress og svona en svo var kannski allt í klessu undir niðri. En maður bara hélt andlitinu og mætti keikur. Maður stóð einhvern veginn keikur og sendi bara „fuck you“-merki; kannski bjargaði það manni.

Það voru vinir mínir sem hjálpuðu mér mest sem unglingi þegar ég var að uppgötva hvernig þetta er allt saman – hvernig maður væri og tilfinningarnar og það að vera í felum. Ég eignaðist mjög góða trúnaðar­vini þegar ég var unglingur og var  ég samþykktur af þeim. Ég var ekkert sá eini í hópnum sem var að glíma við eitthvað; ég var ekkert sá eini sem var að upplifa höfnun. Ég á mjög góða vini í dag sem eru ennþá vinir mínir sem ég eignaðist á þessum tíma og við höfum náð að þroskast saman og hjálpað hvert öðru að takast á við alls konar áföll í lífinu. Ég held að það skipti máli að fá tækifæri til að orða það sem maður er að glíma við; að það sé einhver sem hlusti. Að fá tækifæri til að orða það sem er að bögga mann. Eitt af því sem hjálpaði mér mest í minni glímu við mína samkyn­hneigð var að fá að orða skömmina. Það var frelsun fyrir mig.“ Hann talar um aðstoð fagfólks; mikilvægi þess. „Það að fá tækifæri til að nefna til dæmis skömmina, frelsaði mig frá henni.“

Eigin fordómar

Ólafur viðurkennir að hafa sjálfur verið með fordóma gagnvart samkyn­hneigð sinni sem unglingur. „Já, ég held að það sé það sem er í rauninni kannski aðal­atriðið. Maður speglar alltaf samfélagið. Maður upplifir einhverja hluti og maður er með fordóma gagnvart sjálfum sér; maður vill ekki vera eins og maður er. Maður hatar sjálfan sig af því að manni finnst maður ekki fitta inn. Það getur farið út í alls konar og komið út í kvíða. Það getur komið út í alls konar óreglu. Maður vill bara losna við þetta.“

Fór Ólafur út í óreglu?

„Nei, mér hefur borið gæfa til þess að fara ekki út í mikla óreglu. Ég hef haft einhvern þröskuld. Ég djammaði eins og unglingar gerðu í gamla daga; djammaði mikið og svona en ég hafði alltaf einhvern þröskuld á mér. Ég vildi standa mína pligt eins og maður segir.“

Það fylgdi því stress að vera sam­kyn­hneigður.

Ólafur segist hafa fundið fyrir fordómum í eigin garð þegar hann var farinn að vinna sem leikari.

„Það fylgdi því stress að vera samkyn­hneigður. Manni fannst maður aldrei einhvern veginn vera á réttum stað. Mér fannst eins og það væru gerðar aðrar kröfur til mín heldur en var og svo fann ég fyrir óöryggi. Maður gat einhvern veginn aldrei slakað almennilega á. Mér fannst ég til dæmis ekki geta leikið gagn­kynhneigða menn.“

Er Ólafur laus við eigin fordóma í dag?

„Nei, alls ekki. Það sem er í rauninni svo frábært er að það væri ekkert varið í að lifa lífinu ef það væri ekkert til að glíma við. Það fer enginn í gegnum lífið án þess að þurfa að glíma við eitthvað. Þetta er það sem ég hef verið að glíma við og mér finnst það hafa gengið ágætlega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað