Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Svört vika Önnu: „Ætla ekki að kaupa neitt og spara þannig stórfé“

Anna Kristjánsdóttir.
Anna Krist­jáns­dóttir. Mynd: Facebook

Anna Krist­jáns­dóttir ætlar ekki að kaupa neitt þessa vik­una og spara þannig stórfé.

Hafin er svokölluð svört vika um heim allan en þá er boðið upp á afslætti í flestum versl­unum. Þegar þetta byrj­aði var reyndar aðeins um að ræða svartan föstu­dag en er nú búinn að teygja sig yfir heila viku. Anna Krist­jáns­dóttir segir frá sinni reynslu af svartri viku í nýjust dag­bók­ar­færslu sinni sem hún skrifar frá Tenerife. Segir hún að versl­un­ar­eig­endur hækki vöru­verð áður en þeir síðan lækka það aftur í svartri viku.

„Dagur 1931 – Svört vika.

Það er brostin á svört vika, ekki bara á Íslandi, heldur um allan heim. Upp­haf­lega átti þetta bara að vera svartur föstu­dagur, en er löngu orðið að heilli viku og gott betur því í kjöl­farið kemur staf­rænn mánu­dagur sem spannar einnig ein­hverja daga.“

Anna heldur áfram:

„Þótt ég gæti þess að kaupa sem minnst þessa vik­una, enda víða nýbúið að hækka margar vörur í verði svo hægt sé að gefa afslátt af þeim, þá gerð­ist það fyrir fáeinum árum að ég taldi mig þurfa nýja far­tölvu. Ég skrapp út í Worten á mánu­degi svartrar viku og keypti eina og fékk tals­verðan afslátt af nýhækk­uðu verði tölv­unnar. Ég man ekki lengur hvað tölvan hét, en þetta voru verstu tölvu­kaup ævinnar. Fyrst bil­aði eitt USB portið og þá voru ein­ungis tvö USB port í lagi. Svo bil­aði Haraldur blá­tönn og þá varð ég að fá mér uta­n­áliggj­andi blá­tönn og þarmeð ein­ungis eitt port eftir fyrir mús­ina. Einn morg­un­inn þegar ég ætl­aði að opna tölv­una reynd­ist skjár­inn fastur og brotn­aði af er ég reyndi að opna hana. Þá gafst ég upp þótt tölvan væri innan við tveggja ára gömul, hringdi í son minn og bað hann að útvega nýja far­tölvu og senda mér með hraði og hún varð að vera annað hvort Lenovo eða Dell. Lenovo varð fyrir val­inu og hún hefur gengið hindr­un­ar­laust í rúm tvö ár.

Þessa svörtu viku ætla ég ekki að kaupa neitt og spara þannig stórfé.“

Síðar í dag­bók­ar­færslu sinni segir Anna frá því hvernig hún hafi mögu­lega komið í veg fyrir þrumu­veður á Tenerife:

„Það var spáð þrumu­veðri og rign­ingu á Tenerife í gær. Ég tók því með mér regn­hlíf til að skýla mér á leið­inni úr bíla­kjall­ar­anum og á Klaust­ur­bar þangað sem för­inni var heitið til að gæða mér á pönnu­kökum í boði Sævars ábóta. Regn­hlífin var ekki notuð þann dag­inn og ekk­ert kom þrumu­veðrið, en nú er spurn­ingin. Var sú ráð­stöfun að taka með regn­hlíf­ina til þess að þrumu­veðrið hætti við að koma, eða lugu veð­ur­fræð­ing­arnir?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið