Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

NAUST varar við áformum um vindorkuver á Austurlandi

Vindmyllur
Vind­myllur Mynd: Landsvirkjun

Náttúru­verndar­samtök Austur­lands vara við stórtækum áformum um vindvorkuver í fjórðungnum. Kalla einnig eftir endur­skoðun á áhrifa­þáttum smávirkjana.

Fram kemur í frétt Austur­fréttar að hið ofan­greinda hafi verið bókað á aðalfundi Náttúru­verndar­samtaka Austur­lands (NAUST) sem fór fram 18. mars síðastliðinn. Fór mikill tími á fundinum í að ræða um orkumál í fjórðungnum en stjórnin telur það óásættanlegt að fórna náttúru­perlum og víðerni til dreifingar og orku­nýtingar.

Þó nokkur fyrirtæki á sviði vindorku hafa sýnd áhuga á að reisa vindorku­garða austanlands upp á síðkastið og eru all nokkur slík verkefni komin nokkuð áleiðis, bæði í Fljóts­dalnum sem og í landi Múlaþings, þótt sveitar­stjórn Múlaþings hafi reyndar úrskurðað fyrir nokkru að slík verkefni muni ekki hljóta brautar­gengi fyrr en stjórn­völd á Íslandi hafi sett línu, lög og reglur um vind­orkusvæði og nýtingu til framtíðar, eins og það er orðað í Austur­frétt.

Þá hafa stjórnar­menn NAUST einnig áhyggjur af talsverðu magni smávirkjana sem áætlað er að byggja vítt og dreift á Austur­landi í náinni framtíð en sumar þeirra eru í eða við óbyggð víðerni.

„Í þessu sambandi kallar aðal­fundur NAUST eftir að endur­skoðaðir verði allir áhrifa­þættir svokallaðra smávirkjana, allt að 9,9 MW. Umhverfis­áhrif og umfang virkjana innan þessa stærðar­flokks eru afar breytileg eftir stað­háttum. Því eru megavött ómarktækt viðmið. Náttúru­verndar­samtök Austur­lands gera kröfu um að allar nýjar virkjanir fari í umhverfismat og inn í ramma­áætlun og að undanþágur verði aðeins veittar í tilvikum minni­háttar virkjana til heimilis­nota og smærri atvinnu­rekstrar til sveita. Stærsta fyrir­hugaða vatnsafls­virkjunin á Austur­landi um þessar mundir er virkjun Arctic Hydro á Sviðinhornahraunum og í Hamarsdal. NAUST hvetur sérstak­lega til friðunar þeirra óbyggðu víðerna auk annarra sem eftir eru í fjórðungnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp