Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Hanna Björg ræðir KSÍ-málið og ofbeldismenninguna þar: „Þá varð ég brjáluð“

Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir

„Þá varð ég brjáluð,“ segir Hanna Björg Vilhjálms­dóttir í viðtali í Vikunni þar sem hún reifar meðal annars KSÍ-málið

Hanna Björg hefur verið mikið í umræðunni undan­farið, eftir að hafa vakið athygli í ágústlok með harðri gagnrýni á forystu Knattspyrnu­sambands Íslands, KSÍ. Beindi hún spjótum sínum að forystunni vegna kynferðis­brotamála sem hún sagði hafa verið þögguð niður.

Í nýjasta tölublaði Vikunnar ræðir Hanna Björg það mál og mörg önnur; femínisma, gerenda­meðvirkni og skrímsla­væðingu kynferðis­ofbeldis. Upphaf málsins sem varðar KSÍ segir Hanna Björg mega rekja til færslu sem skrifuð hafði verið í maí. Í færslunni segir ung kona frá hópnauðgun sem hún varð fyrir árið 2010. Hanna Björk hafði ekki séð færsluna á sínum síma og „fékk bara áfall“. Í kjölfarið bárust henni upplýsingar um að tveir liðsmenn karla­landsliðs Íslands í knatt­spyrnu hefðu komið þar við sögu.

Í viðtalinu í Vikunni segist Hanna Björg einnig hafa fengið að vita að umrædd stúlka hafi ætlað að kæra ofbeldið, en „hafi mætt svo miklu mótlæti og henni eindregið ráðlagt að kæra ekki“. Stúlkunni hefði verið sagt að „við ofurefli væri að etja, þessir menn myndu einfald­lega hakka hana í sig“. Á endanum hafi stúlkan staðið ein uppi með þjáninguna.

Hanna Björg gat ekki hugsað sér að sitja auðum höndum og byrjaði að skrifa færslur á Facebook sem hún fékk mikil viðbrögð við og „fullt af sögum sem staðfestu að það væru fleiri ofbeldis­menn þarna í skjóli KSÍ“. Hún ákvað að svæla þetta fólk út og láta það svara fyrir þessi mál.

Í kjölfar pistils sem Hanna Björg skrifaði og var birtur á Vísi sendi KSÍ frá sér yfir­lýsingu vegna málsins. Í yfir­lýsingunni var Hanna Björg ekki ávörpuð beint, en sagt að um dylgjur væri að ræða; KSÍ hefði aldrei hylmt yfir með ofbeldis­mönnum.

„Þá varð ég brjáluð,“ segir Hanna Björg í viðtalinu, sagðist enda vita að um lygi væri að ræða af hálfu KSÍ.

Hanna Björg telur ástæðu til að taka fram að tíma­setningin hjá henni hafi verið tilviljun, hún hafi ekki vitað að fram undan væru leikir hjá lands­liðinu. Hvað sem því líður þá hafði hún erindi sem erfiði og náði loksins „að svæla þá út til að tilkynna lands­liðið, þar sem ákveðnir menn voru ekki í hópnum“. Þá vaknaði forvitni fjölmiðla á málinu og spurt var um umræddar ásakanir. „Þá byrjaði boltinn loks að rúlla,“ segir Hanna Björk.

Á meðal þeirra skilaboða sem Hanna Björg fékk í kjölfar gagnrýni sinnar voru ein frá konu sem sagðist enn burðast með óuppgert ofbeldi sem hún hafði sætt af hálfu lands­liðsmanns í kanttspyrnu þrjátíu árum fyrr.

Viðtalið við Hönnu Björgu má lesa í forsíðu­viðtali Vikunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Gunnar Smári lýsir baráttunni við veikindin

Af hverju getur lyktin af makanum verið svona ómótstæðileg?

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði