Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fjórar tannlausar kengúrur fundust í Hafnarfirði: „Þær eru þarna til bráðabirgða í nokkra daga.“

Kengúrur frá Sædýrasafninu Mynd/skjákot timarit.is -DV
Kengúrur frá Sædýra­safn­inu Mynd/skjá­kot tima­rit.is -DV

„Kengúrurnar eru frekar smáar en það furðulega er, að dýrin fjögur eru tannlaus og lítur helst út fyrir að tennurnar hafi verið dregnar úr þeim.“ sagði í frétt Tímans föstu­daginn, 23. desember 1988 undir fyrir­sögninni: Kengúrur híma í kulda og trekk.  

Blaða­maður og ljós­myndari Tímans könnuðu staðinn eftir að ábending barst um að einhver dýr væru enn að finna á svæði Sædýra­safnsins en safnið hafði verið úrskurðað gjald­þrota og lokað þremur árum áður. 

„Eftir nokkra stund kom í ljós að upplýsingarnar eru réttar, á staðnum eru kengúrur. Leyfi fékkst til að líta á dýrin, en ekki mátti mynda þau eða birta frétt í blaðinu. Tíminn hundsar þetta bann vegna þess að þetta er dæmi um ómannúð­lega meðferð á dýrum sem eiga alls ekki að lifa við jafn slæmar kringum­stæður og þarna eru, sem eru eins ólíkar náttúru­legum lífs­aðstæðum þeirra í Ástralíu og hugsast getur. Starfs­maðurinn sagði að til hefði staðið að lóga dýrunum í byrjun desember en það hefði dregist. – Það er kannski engin furða því með réttu hefði átt að lóga dýrynum fyrir þremur árum.“

Aðstæður dýranna voru vægast sagt bæði bágbornar og forkastanlegar út frá lýsingu blaða­mannsins. „Kofinn er lítill og sóðalegur, stærðin er u.þ.b. 2×5 metrar. Ekkert er inni í kofanum nema bert stein­gólfið og körfur með mygluðu brauði, salati og ávöxtum. Að vísu hefur veríð komið fyrir ofni til að veit einhvern yl. Þarna verða dýrin að híma því út geta þau ekki farið vegna kuldans. Eftir að Sædýra­safnið varð gjald­þrota var öllum öðrum dýrum lógað, en hið furðulega er að allan þennan tíma hefur lífinu verið haldið í keng­úrunum fjórum, sem eru á bilinu fjögurra til fimm ára gamlar.“ 

Kengúr­urnar sem fund­ust Mynd/skjá­skot tima­rit.is – Tíminn

Fræðslustjóra fátt um svör

Fjöl­miðilinn, Tíminn setti sig í samband við þáverandi fræðslu­stjóra safnsins, Helga Jónsson. Var hann spurður spurninga um aðstæður og aðbúnað dýranna.  „Þær eru þarna til bráða­birgða í nokkra daga,“ svaraði hann.

En hafa dýrin ekki verið þarna frá því að safnið varð gjald­þrota? 

„Þær eru búnar að vera þarna alla sína tíð.“ 

– Af hverju hefur dregist svona lengi að lóga þeim eða koma þeim fyrir við mannúðlegri aðstæður? 

„Ég get ekki svarað því. Þeir sem vinna þarna hafa haldið mikið upp á þessi dýr og hugsað um þau.“ 

– Eru það þá starfs­menn sem hafa viljað halda í dýrin? 

„Ég sé ekki forsendur fyrir því að fara að ræða þetta.“ 

– En hefur ekki verið talað við ykkur af fólki frá Dýra­verndunar­félaginu? 

„Nei, það hefur ekki verið neitt að keng­úrunum, þær eru í upphituðu húsi og vel um þær hirt.“ 

– Ég sá hvernig er búið að þeim, þær eru fjórar í Iitlum kofa. Maðurinn sem ég hitti sagði að þeim yrði lógað mjög fljótlega. Veistu hvenær það verður gert? 

„Ég upplýsi það bara ekkert, ég vil ekki ræða þetta frekar.“ 

– Má ég spyrja hvort þið hafið reynt að koma þeim úr landi í dýragarða? 

„Nei, við höfum ekki reynt það.“ 

Tíminn tilkynnti málið

Fjöl­miðillinn tilkynnti Sambandi dýra­verndunar­félaga Íslands um kengúrurnar sem tók málið fyrir. Undrun formanns sambandsins leyndi sér ekki og sagði sambandið ekki hafa vitað betur en að öllum dýrum safnsins hafi verið lógað.

„Hvað ertu að segja!“ 

Var það fyrsta sem Jórunn Sörensen formaður Sambands dýra­verndunar­félaga Íslands sagði þegar Tíminn tilkynnti henni um kengúrurnar. „Við héldum að það væri búið að lóga öllum dýrum sem voru í safninu og vorum ánægð með það. Sædýra­safnið var alltaf til vandræða og fjöldi mála sem kom upp vegna slæmrar meðferðar á dýrunum. Varðandi þetta tiltekna mál sagði Jórunn: „Þetta kemur mér mjög á óvart eins og ég sagði áðan því okkur hafði verið Tímamynd: Gunnar sagt að þarna væri ekkert kvikt lengur. Ég á heldur alls ekki von á því að það sé vel um dýrin hugsaö því áralóng vandræði voru meo safnið á meðan það var og hét. Nú eru engir áhorf­endur til staðar til að veita aðhald, þannig að ég á ekki von á góðu.“ Dýra­verndunar­félagið mun taka þetta mál fyrir og sjá til þess að dýrin losni undan þessari slæmu meðferð.

Sædýrasafnið í Hafnarfirði

Jón Kr. Gunnarsson skip- og ritstjóri stofnaði Sædýra­safnið árið 1969 ásamt Hjálpar­sveit skáta í Hafnar­firði. Safnið var vel sótt á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Starfsemi safnsins fékk á sig harða gagnrýni meðal annars þar sem starfsemi þess var fjár­mögnuð með föngun og sölu háhyrninga til sædýra­safna og dýragarða víðsvegur um heiminn.

Sædýra­safnið var staðsett neðarlega í Holtunum í Hafnar­firði. Þar gátu gestir séð hvali, ísbirni, kengúrur, seli, ljón, apa og íslensk húsdýr. Safninu var lokað sökum rekstar­erfiðleika árið 1987.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum