Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Geirdís verið fátæk allt sitt líf og býr í húsbílnum: „Það er ansi kalt að fara á fætur“

„Ég er ör­yrki með tekjur frá Trygginga­stofnun og er að fá 225 þúsund út­borgað þaðan á mánuði. Þannig að ég er ekki einu sinni með laun til þess að vera á leigu­markaði vegna þess að ég get ekki staðið undir mánaðar­legum af­borgunum af leigu,“ segir Geir­dís Hanna Kristjáns­dóttir, 47′ ör­yrki í höfuð­borginni.

Undan­farin 2 og 1/2 ár hefur Geirdís búið í hjól­hýsa­byggðinni í Laugar­dalnum. í húsbíl sem hún á sjálf. Hún fær hins vegar ekki að hafa það lögheimili og er því í raun skráð heimilis­laus sam­kvæmt kerfinu. „Ég bý í mínu eigin hús­næði og engum háð nema sjálfri mér,“ segir Geirdís Hanna.

Geirdís var næst­yngsta barn einstæðrar móður sex barna og sjálf varð hún einstæð móðir með þrjú börn á framfæri. Allt sitt líf hefur hún verið fátæk og kýs í dag að búa í sendibíl í Laugar­dalnum. Í viðtali við Mannlíf sumarið 2020

„Ég skulda ekkert og hef ekki gert í þónokkuð mörg ár en ég er enn í þeirri stöðu að velta fyrir mér hverri krónu til að hámarka verðgildi hennar. Sem öryrki má ég hvorki eiga sparifé né fá greiðslur úr lífeyris­sjóði án þess að það skerði örorku­lífeyrinn frá Trygginga­stofnun ríkisins. Ég þurft að velja á milli þess að borga reikningana eða kaupa í matinn, kaupa mat eða nauðsynleg lyf, kaupa föt á börnin eða mig, velja tann­heilsu barnanna eða mína eigin, leyfa börnunum að æfa íþróttir eða fara með þeim í stutt frí innanlands og leigja mér húsnæði eða lifa án fjárhags­áhyggna,“ segir hún og heldur áfram.

„Í dag bý ég í sendibíl sem var breytt í húsbíl vegna þess að ég kýs að lifa, en ekki bara lifa af. Ég var fátæk áður en ég varð öryrki, vann láglauna­störf með þrjú börn á framfæri og í stöðugum afkomu­ótta. Ég hef glímdt við kvíða og þunglyndi frá barnæsku, lent í nokkrum bílslysum sem orsökuðu stoðkerfis­vanda og lenti í líkams­árásum sem höfðu bæði andlegar og líkamlegar afleiðingar.“

Geirdís segir því enn fylgja skammar­stimpill hér á landi að vera öryrki. „Já, því miður. Ég er í 50% starfi og mörgum finnst að fyrst ég geti það þá geti ég alveg unnið 100% starf. Vistin í bílnum er í megin­dráttum mjög góð. Á veturna eru snjó­buxurnar og þykka úlpan á vísum stað. Á köldustu dögum og nóttum hefur orðið mjög kalt og einn morguninn voru rúðurnar hélaðar að innan. Það er ansi kalt að fara á fætur stundum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning