Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Sýknaður af því að brjóta kynferðislega á barni eftir ball

Maðurinn neitaði sök frá upphafi

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í málinu
Hér­aðs­dómur Reykja­ness dæmdi í mál­inu Mynd: Víkingur

Karlmaður hefur verið sýknaður í Héraðs­dómi Reykjaness af ákæru fyrir kynferðis­brot og brot gegn barna­verndar­lögum gegn stúlku sem var tæplega 16 ára þegar meint brot átti sér stað. Atvikið átti að hafa gerst í eftir­partíi í orlofs­húsi eftir nýnema­ball í ónefndum skóla aðfara­nótt 2. september 2023.

Manninum var gefið að sök að hafa áreitt stúlkuna kynferðis­lega með því að káfa á berum brjóstum hennar og reyna að kyssa hana tungu­kossi. Hann neitaði sök frá upphafi og kvaðst hafa farið inn í herbergi hússins til að hvíla sig vegna ölvunar og hávaða í partíinu.

Stúlkan var mjög ölvuð umrædda nótt og bar fyrir dómi að hún myndi aðeins brot úr því sem gerðist í herberginu. Hún mundi meðal annars eftir að hafa reynt að komast út um glugga og dyr en að einhver hefði hindrað hana. Hún kvaðst hins vegar ekki muna eftir samskiptum við ákærða.

Nokkur vitni gáfu skýrslu um atburðina. Eitt þeirra sagðist hafa séð manninn kyssa stúlkuna og káfa á brjóstum hennar þegar vitnið leit inn um glugga. Dómurinn taldi framburð þess vitnis hins vegar ekki nægilega áreiðanlegan, meðal annars þar sem önnur vitni sem sáu inn í herbergið báru ekki um sambærilega háttsemi.

Dómurinn taldi heldur ekki sannað að maðurinn hefði losað um leðurtopp stúlkunnar. Var niður­staðan sú að ákæru­valdinu hefði ekki tekist að sanna sekt mannsins svo hafið væri yfir skyn­samlegan vafa.

Hann var því sýknaður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning