Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ekki henda bolnum alveg strax

Freyr Eyjólfsson
Freyr Eyj­ólfs­son Mynd: Borgarbókasafnið

Hvað verður eiginlega um gömlu galla­buxurnar, bolinn sem enginn nennir lengur að ganga í og allt hitt dótið sem við losum okkur við? Endar þetta í nýju lífi, brennslu­ofni eða á risa­stórum haug hinum megin á hnettinum?

Freyr Eyjólfsson ætlar að kafa ofan í þessar spurningar á Borgar­bókasafninu Árbæ mánudaginn 14. september klukkan 16:30.

Freyr er sjálf­skipaður og forfallinn „hringrásarhagkerfispeppari“ og telur að við getum bæði bætt heiminn og eigið líf með því að hugsa aðeins öðruvísi um hlutina sem við eigum – og sérstak­lega það sem við erum hætt að nota.

Hann segir hringrásar­hagkerfið ekki aðeins snúast um flokkun og endur­vinnslu heldur einnig lofts­lagsmál, þjóðar­öryggi, hagkvæmni, sjálfbærni og lýðheilsu.

Freyr ætti að þekkja mála­flokkinn ágætlega. Hann er verkefna­stjóri hjá Sorpu en hefur auk þess komið víða við sem tónlistar­maður og fjölmiðla­maður.

Spjallið er hluti af alþjóð­lega verk­efninu make-a-thek sem Borgar­bókasafnið tekur þátt í næstu þrjú árin. Markmiðið er að koma saman fólki sem vill finna nýjar og skapandi leiðir til að draga úr sóun.

Þannig að áður en næsti bolur fær flugmiða í ruslið gæti verið ráð að heyra hvað hringrásar­hagkerfis­pepp­arinn hefur um málið að segja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning