Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Vilhjálmur ætlar ekki að taka þessu þegjandi – „Kemur ekki til greina“

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðs­félags Akraness, segir það ekki koma til greina að hefja gjaldtöku aftur í Hval­fjarða­göngum. Hann segir á Facebook að slíkt óréttlæti geti íbúar Akraness ekki sætt sig við. Vilhjálmur vísar í fréttir um að Sigurður Ingi Jóhannsson innviða­ráðherra sé að stefna á að taka upp gjaldtöku í öllum jarð­göngum landsins á næsta ári.

„Í mínum huga kemur alls ekki til greina að hefja gjaldtöku aftur í Hval­fjarða­göngum til þess eins að fjármagna jarðgöng annars staðar á landinu. Það er algerlega ljóst að þessi auka­skatt­lagning sem fólgin var í veggjöldum í gegnum Hval­fjarðagöng var mun meira íþyngjandi fyrir okkur Akurnesinga og nærsveitir enda nægir að nefna í því samhengi að um 35% Akurnesinga sækja daglega atvinnu sína á höfuð­borgar­svæðið,“ segir Vilhjálmur.

Hann segir Akurnesinga hafa greitt fyrir þessi göng í 20 ár. „Við þurftum að greiða í 20 ár veggjöld í gegnum Hval­fjarðagöng og ég get ekki ímyndað mér að Akurnesingar og nærsveitir munu sætta sig við það að þurfa að byrja að greiða að nýju til þess eins að fjármagna jarðgöng annarstaðar á landinu,“ segir Vilhjálmur.

Hann segir að þessi áform myndu valda enn hærra verðlagi á landsbyggðini. „Munum líka að flutnings­kostnaður á aðföngum vegna veggjaldsins fór eðli­málsins samkvæmt beint útí verðlagið og því kemur ekki til greina að taka upp veggjöld í Hval­fjarða­göngum enda er búið að greiða þau göng upp.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Ísraelsher segir þá hafa verið liðsmenn Hamas.
Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Parið var í hávaðarifildi að sögn lögreglu

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað