Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Sigmundur Davíð hrósar innflytjendum

Mið­flokks­for­mað­ur­inn vill styrkja íshokkí-íþrótt­ina hér á landi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Sig­mundur Davíð minn­ist Fálkanna Mynd: Víkingur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokk­ur­inn, rifjar upp sögu­leg tengsl Vestur-Íslend­inga við íshokkí á Ólymp­íu­leikum í færslu á sam­fé­lags­miðl­inum X, í kjöl­far úrslita­leiks karla þar sem Banda­ríkin sigr­uðu Kanada.

„Í dag tap­aði Kanada fyrir Banda­ríkj­unum í úrslita­leik íshokkík­eppni karla á Ólymp­íu­leik­unum. Það var fyrsti sigur Banda­ríkj­anna frá því þeir unnu Sóví­et­ríkin í sögu­frægum leik árið 1980,“ skrifar Sig­mundur.

Hann bendir jafn­framt á að Kanada hafi lengst af verið sig­ur­sælasta þjóðin í grein­inni. „Kanada hefur unnið oft­ast allra og sigr­aði fyrstu íshokkík­eppni Ólymp­íu­leik­anna árið 1920 með fræknu liði Vestur Íslend­inga,“ segir hann og vísar þar í lið íslenskra inn­flytj­enda í Kanada.

Inn­flytj­enda­liðið Winnipeg Falcons keppti fyrir hönd Kanada. „Þá kepptu Fálk­arnir (Winnipeg Falcons) fyrir Kanada. Liðið var stofnað af Íslend­ingum þar í landi og að öllu leyti skipað Íslend­ingum að frá­töldum einum „Eng­lend­ingi“,“ skrifar hann og bætir við að þannig tali sumir Vestur-Íslend­ingar enn um aðra þjóð­flokka.

Sig­mundur segir sög­una vel þekkta meðal Vestur-Íslend­inga. „Allir sem hafa heim­sótt Vestur Íslend­inga þekkja þessa sögu. Þar er minn­ing liðs­ins enn í hávegum höfð og við ættum að gera það líka, m.a. með því að styðja við íshokkí á Íslandi,“ skrifar hann.

Hann nefnir jafn­framt að í merki íslenska íshokkílands­liðs­ins sé vísun í þennan arf. „Í merki íslenska lands­liðs­ins má sjá skemmti­lega til­vísun í þetta fræga lið, lítið hlyns­lauf (tákn Kanada), til minn­ingar um hinn frækna sigur Fálkanna,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Sport

Nærmynd

Hver er Theodór Elmar?

Tíu árum eftir árangur Íslands á EM 2016 rifjar Mannlíf upp feril Theodórs Elmars Bjarnasonar, eins af leikmönnum liðsins.

Kristian Nökkvi kemur inn í lands­liðs­hóp­inn

Átján ára knatt­spyrnu­maður lést eftir höf­uð­högg í miðjum leik

Brasil­ísk knatt­spyrnu­fé­lög leita til lög­reglu eftir slags­mál í leik U20-liða kvenna

Helga Margrét vill breyta heim­inum fyrir íslenskar íþrótta­konur

Mark­vörð­ur­inn í áfalli eftir dauðs­fallið