Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Sósíalistar vilja skera niður ofurlaun ráðamanna: „Eðlilegt að þeir byrji á sjálfum sér“

Sanna Magdalena Mörtudóttir.
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir. Mynd: Facebook

Sós­í­alista­flokk­ur­inn stingur upp á að ríkið hag­ræði með því að skera niður „ofur­laun og sporslur“ til ráða­manna.

Kosn­inga­stjórn Sós­í­alista­flokks Íslands var að senda frá sér ályktun um hag­ræð­ing­ar­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar. Þar segir að ein mik­il­væg­asta hag­ræð­ingin sem hægt er að ráð­ast í sé að „skera niður ofur­laun og sporslur til ráða­manna sem eiga ekki að vera í allt öðru­vísi efna­hags­um­hverfi en almenn­ingur.“

Álykt­unin hefst á eft­ir­far­andi máta:

„Vinnum gegn elítu­stjórn­málum: Ályktun um hag­ræð­ing­ar­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar

Ein mik­il­væg­asta hag­ræð­ingin sem hægt er að fara í er að skera niður ofur­laun og sporslur til ráða­manna sem eiga ekki að vera í allt öðru­vísi efna­hags­um­hverfi en almenn­ingur. Lægstu laun þing­manna eru nú 1.525.841 kr. á mán­uði en hæstu laun 2.487.072 kr. Þingmenn fá síðan oft ýmsar greiðslur ofan á launin. Laun ráð­herra eru í flestum til­fellum rétt tæp­lega 2.500.000 kr. Einnig fá þing­menn mjög háar auka­greiðslur ef þeir gegna for­mennsku eða vara­for­mennsku þing­flokks. Þingmenn fá einnig oft greiddan fastan mán­að­ar­legan kostnað sem getur numið hund­ruðum þús­unda. Sós­í­alista­flokkur Íslands telur að setja þurfi stefnu um hvað telj­ist eðli­legur munur á milli hæstu og lægstu launa hjá hinu opin­bera þannig að mun­ur­inn verði ekki meira en þre­faldur. Lægstu laun í land­inu sam­kvæmt kjara­samn­ingi Eflingar og VR við SA eru um 450.000 kr.“

Í seinni hluta ályktun Sós­í­alista­flokks­ins segir að best sé að ráða­menn byrji á sjálfum sér í boð­uðum hag­ræð­ing­ar­að­gerðum, til að „vinna gegn því að ráða­menn verði að hálaun­aðri elítu“.

„Fjár­munum okkar er ekki best varið með ofur­launum sem aðgreina ráða­menn frá veru­leika almenn­ings. Það eitt að ræða við mann­eskju sem ekki nær endum saman gefur ein­ungis grófa mynd af því hvernig sú staða er í raun. Til að vinna gegn því að ráða­menn verði að hálaun­aðri elítu, er eðli­legt að þeir byrji á sjálfum sér í boð­uðum hag­ræð­ing­ar­að­gerðum. Hversu mikið myndi þjóð­ar­búið spara á ári ef þing­menn væru með sam­bæri­leg laun og grunn­skóla­kenn­arar sem í dag nema 632.887 kr. grunn­launum? Myndi slík hag­ræð­ing ekki einnig skila sér í jarð­bundn­ari ráða­mönnum, í auknum tengslum við þann efna­hags­lega veru­leika sem margir búa við?

– Kosn­inga­stjórn Sós­í­alista­flokks Íslands.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Gréta María stýrði Prís frá opnun verslunarkeðjunnar í ágúst 2024 en hætti sem framkvæmdastjóri á síðasta ári.
Heimur

Ung­lingar hand­teknir í Póllandi grun­aðir um und­ir­bún­ing hryðju­verka

Pólitík

Ingvar yfir­gefur Viðreisn

Pólitík

„Ísland á ekki að vera þekkt sem sölu­staður vændis“

Innlent

Innlent

Íslend­ingar flykkj­ast á bóka­söfnin sem aldrei fyrr

Landsmenn verja nú að meðaltali 64 mínútum á dag í lestur og hlustun á bækur, fimm mínútum meira en í fyrra.
Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Innlent

Verð­munur á bök­un­ar­vörum nær 66 pró­sentum milli versl­ana

Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa