Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Steinhissa yfir vistaskiptum Kjartans og Mörtu

„Í fyrsta lagi hélt ég að flokks­skírteini þeirra Kjartans og Mörtu væri samgróið við þau“

Kjartan Magnússon borgarfulltrúi
Kjartan Magn­ús­son borg­ar­full­trúi Var í Sjálf­stæð­is­flokknum en er nú í Mið­flokknum Mynd: Facebook

Allt ætlaði um koll að keyra í gærkvöldi þegar borgar­fulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjóns­dóttir tilkynntu um að þau hefðu yfirgefið Sjálfstæðis­flokkinn og gengið til liðs við Miðflokkinn og er afstaða Sjálfstæðis­flokksins til Borgar­línunnar helst ástæða þess.

Þá var þeim einnig bolað út af lista flokksins fyrir komandi borgar­stjórnar­kosningar, við lítinn fögnuð Kjartans og Mörtu, en aðeins rúmir tveir mánuðir eru í kosningarnar.

Einn af þeim er stein­hissa er Stefán Pálsson, sagn­fræðingur og vara­borgar­fulltrúi Vinstri grænna.

„Jahér, þetta eru þó tíðindi,“ skrifar Stefán á samfélags­miðla.

„Í fyrsta lagi hélt ég að flokks­skírteini þeirra Kjartans og Mörtu væri samgróið við þau. En átyllan kemur mér líka á óvart: Borgar­línan. Fyrir tæpri viku hlustaði ég á Hildi Björns­dóttur á Sprengis­andi taka harðari og neikvæðari afstöðu til samgöngu­sáttmálans og Borgar­línu­verk­efnisins en ég hef áður heyrt frá henni. Í borgar­stjórn á þriðjudaginn fluttu Sjálfstæðis­menn svo tillögu sem augljós­lega hafði þann tilgang einan að reyna að drepa verk­efninu á dreif með tafa­leikjum: fara fram á endur­skoðun, endurmat og hefja viðræður upp á nýtt,“ heldur sagn­fræðingurinn áfram.

„En það er greini­lega hörku­kapphlaup á hægri vængnum um hver geti verið mesta kyrrstöðu­aflið í almennings­samgöngum á höfuð­borgar­svæðinu. Á meðan nýr bíll bætist á götur höfuð­borgar­svæðisins á 2 klst. fresti vill hægrið stofna nýja starfs­hópa í leit að töfra­lausnum sem eru ekki til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Þingmaðurinn segir þróun gervigreindar hafa verið hraðari á síðustu vikum en djörfustu spár gerðu ráð fyrir.
  • Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

  • Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

  • Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

  • „Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum