Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Viðar spyr „hvort það beri að láta fatlað fólk leika fatlaðar persónur“

Viðar Víkingsson leikstjóri.
Viðar Vík­ings­son leik­stjóri.

Leik­stjórinn Viðar Víkingsson skrifar á samfélags­miðli að „sú ákvörðun Balta að láta Egil Ólafsson leika í mynd sinni þrátt fyrir að hann eigi við Parkinson að stríða hlýtur að rifja upp nýlegar vanga­veltur fólks um hvort það beri að láta fatlað fólk leika fatlaðar persónur. Og hvort það sé siðferði­lega rétt að sýna fólk sem er á einhvern hátt hamlað.“

Bætir við:

„Þegar Halldór Laxness varð áttræður 1982 var mér falið af hálfu RÚV að vinna um hann þrjá þætti sem pródusent. Einn þeirra byggðist á viðtölum við fólk sem hafði haft kynni af honum á lífs­leiðinni. Þar fannst mér áríðandi að mynda samferða­menn hans frá fornu fari sem enn voru þá á lífi, Jón Helgason, Kristján Albertsson og Ragnar í Smára. En Ragnar var kominn með Parkinson. Engu að síður tókum við upp viðtal við hann, þótt hann ætti erfitt með að klára sumar setningar.“

Viðar segir að „eftir sýningu þáttarins skömmuðu mig sumir, töldu að þetta hefði verið niður­lægjandi fyrir Ragnar og skapað um hann rangar minningar.

Um líkt leyti var ákveðið að taka upp viðtal við Svavar Guðnason list­málara sem birta átti í vikulegum menningar­þætti sem hét Vaka. Þetta viðtal hafði verið kynnt í dagblöðum áður en það hafði verið tekið upp. En þegar við Halldór Björn Runólfsson list­fræðingur hittum svo Svavar uppgötvuðum við að hann var kominn með Alzheimer. Það hafði enginn sagt okkur.“

Viðar segir að svör Svavars hafi verið „mjög út í bláinn. En hann gat enn málað. Svo „viðtalið“ varð á endanum myndskeið af Svavari að mála með strengja­kvartett eftir Beethoven á hljóð­rásinni; það kom ekki annað til greina en að sýna það fyrst það hafði verið kynnt í blöðunum.

Eftir sýningu þáttarins var töluvert hnussað yfir þessu einkenni­lega viðtali úti í bæ. Auðvitað máttum við alls ekki segja frá því hvernig á því stóð að það leit svona út.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning