Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Tveggja barna móðir ákærð fyrir að nauðga tvíburabræðrum undir lögaldri

Watts fjölskyldan
Watts fjöl­skyldan Mynd: Trausti Hafsteinsson

Þrjátíu og sjö ára gömul móður frá Virginiufylki í Banda­ríkjunum hefur verið ákærð fyrir nauðgun eftir að lögreglan fann hana nakta með 15 ára dreng sem leitað hafði verið að. Tvíbura­bróðir hans sakar konuna einnig um misnotkun.

Fanga­mynd af Watts.

Fram kemur í frétt The New York Post að Ashleigh Watts hafi uppruna­lega verið nöppuð af lögreglunni er hún kom heim til hennar í Chesepeake í Virginiufylki í júlí, í leit að týndum unglings­strák. Hún bað lögregluna um að bíða fyrir utan á meðan hún færi í brjósta­haldara og setti hundana út. „Lögreglu­fulltrúar sögðu að þó nokkrum mínútum síðar hafi Watts komið aftur að dyrunum með hundana sína tvo, og hleypti þeim inn,“ segir í dómsskrám.

Þar segir ennfremur: „Þegar lögreglu­fulltrúarnir fjarlægðu dýnu í svefn­herbergi á efri hæðinni, sáu þeir hvítan unglinga­strák fela sig í litlu rými, aðeins klæddur boxer-nærbuxum. Þegar hann var spurður hvort hann væri sá sem hafði strokið að heiman, játaði hann því og sýndi þeim æfinga­ökuskírteini sitt.“

Í byrjun var Watts ákærð fyrir að hafa stuðlað að afbrotum ungmenna, en kæran hefur síðan stækkan en hún er nú ákærð fyrir þrjú tilvik um ósiðsama háttsemi gagnvart börnum undir lögaldri, vegna sjúkra samskipta sem hún er sökuð um að hafa átt við unglingana.

Tvíburarnir bjuggu á móti einbýlis­húsi Watts og voru vinir sonar hennar, sem er á svipuðum aldri og þeir. Watts er grunuð um að hafa byrjað að gera sér dælt við bræðurna, ári áður en hún var nöppuð. Lögreglan hóf að rannsaka hina tveggja barna móður eftir nafnlausa ábendingu um meint kynferðislegt saman hennar við tvíburana, í febrúar.

Watts.

Sama mánuð hafði eigin­maður Watts komið að henni um klukkan tvö eftir miðnætti, þar sem hún var ber að ofan í sófanum við hliðinni á öðrum tvíburanum, sem „þóttist vera sofandi,“ samkvæmt játningu hans síðar í rannsókn málsins.

Þegar foreldrar drengsins spurðu hann út í atvikið sagðist hann hafa farið á heimili Watts til að reykja gras og að hann hafi sofnað í sófanum. Fjöl­skyldurnar tvær voru „mjög nánar“ og höfðu þá reglu að dyr beggja heimila stæðu ætið opnar fyrir meðlimi fjöl­skyldanna.

Foreldrar bræðranna sögðu lögreglu­fulltrúum að þeir hefðu eytt miklum tíma á heimili Watts en að þau hefðu gert ráð fyrir að þeir væru að hanga með syni hennar.

Watts er þó grunuð um að hafa, á bakvið luktar dyr, hafa misnotað tvíburana kynferðis­lega sem og tilfinninga­lega en annar þeirra sagði öðrum nágranna sínum frá sjúkri misnotkun Watts. „Nágranninn sagði að hann hefði sagt sér að hann hafi verið að stunda kynlíf með frú Watts síðan í júní 2022,“ skrifaði lögreglan í yfir­lýsingu um líklegt tilefni. „Hann sagði nágrannanum að hann og frú Watts væru ástfangin og þegar hann yrði 17 ára myndi hún skilja við eiginmann sinn og giftast sér.“

Yfirvöld segja að eftir að hið meinta 13 mánaða samband var afhjúpað hafi unglingurinn strokið að heima og fundist í felum í svefn­herbergi Watts, þremur vikum síðar, þann 26. júlí, samkvæmt WAVY.

Tvíburarbróðir drengsins játaði við rann­sóknaraðila að Watts hefði boðið honum í heimsókn til að reykja gras og að hún hefði gefið honum nærbuxnapar af henni. Hann heldur því einnig fram að hún hefði snert sig á óviðeigandi hátt, þrátt fyrir að hann hefði beðið hana um að hætta. Foreldrar tvíburanna, sem og eigin­maður Watts, hafa krafist nálgunar­banns á hana.

Skýrsla sem eigin­maður konunnar lagði fram, lýsir miklu magni af peningum, marijúana og fyrir­fram­greiddum farsíma sem að sögn fannst á heimilinu eftir handtöku hennar.

Watts getur átt þrjátíu ára fangelsi yfir höfði sér, verði hún fundin sek.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár