Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Gunnar var niðurlægður af kennara – Jón Gnarr: „Mikið er þetta sorglegt að sjá“

Gunnar Ingi æfir lyftingar af kappi.
Gunnar Ingi æfir lyft­ingar af kappi. Mynd: Aðsend

Jón Gnarr skrifaði færslu á Twitter þar sem hann birtir TikTok myndskeið frá ungum dreng sem talaði um einelti sem hann varð fyrir af hendi grunn­skóla­kennara. Jón vonar að kennarinn þurfi að svara fyrir fram­komuna.

Á dögunum birti hinn 19 ára Gunnar Ingi Ingvarsson myndband á samfélags­miðlinum TikTok þar sem hann er að lyfta lóðum en þar er einnig texti á borð við „Gunnar, afhverju hatarðu líkama þinn svona mikið?“, „Af hverju æfirðu svona mikið?“ og „Af hverju viltu ekki segja hversu þungur þú ert?“. Þegar líður á mynd­bandið sést hvar kennari í Víði­staðaskóla gerir grín að honum fyrir framan bekkjar­félaga hans sem taka upp grínið og dreifa því svo um vefinn en Gunnar var á þessum tíma í níunda bekk. Kennarinn spyr Gunnar hversu þungur hann sé og setur svo upp dæmi á töfluna þar sem hann skrifar nafn Gunnars og kíló­fjöldann. Þegar Gunnar, sem hafði þarna verið lagður í einelti um nokkurt skeið vegna þyngdar sinnar, biður kennarann að stroka þetta út. Kennarinn gerir það ekki heldur skrifar á töfluna Fat Boy við nafn Gunnars. Svo stillti hann sér upp fyrir myndatöku við töfluna.

Jón Gnarr birti Twitter-færslu þar sem hann harmar þessa framkomu kennarans.

„mikið er þetta sorglegt að sjá. börn fyrirfara sér útaf svona ljótri framkomu. hann segist sjálfur hafa velt því fyrir sér. vonandi verður þessi kennari látinn svara fyrir þessa óhæfu“

Twitter-færsla Jóns Gnarr

Gunnar sagði í samtali við Mannlíf að hann hafi orðið hrærður við að sjá að Jón Gnarr skyldi standa með honum gegn þessu óréttlæti. „Ég fékk smá tár í augun að sjá þetta, að svona fræg manneskja sé að styðja mig í þessu. Og ég talaði við hann í skila­boðunum og hann sagðist vera stoltur af mér og að ég ætti að halda áfram að vera óhræddur á minni leið í lífinu. Og ég fór alveg að gráta yfir þessu, þetta hitti mig í hjarta­stað.“

Hér fyrir neðan má sjá TikTok myndband Gunnars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Húsið var reist árið 1922
Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Maðurinn er grunaður um kynferðisbrot

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið