Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Sláandi munur á okri í Vesturbænum og Tenerife: Anna þess vegna „ekki full allan daginn“

Anna Kristjáns.
Anna Krist­jáns.

Verðmunur á Íslandi annars vegar og Tenerife hins vegar hefur nokkuð verið til umræðu undan­farið. Reynsla margra er að á eyjunni fögru sé næstum ekkert dýrara en hér. Anna Kristjáns­dóttir hefur verið búsett þar fyrir sunnan um nokkurt skeið og hún segir fólk ekki skilja hvers vegna hún sé ekki fulla alla daga, alla daga. Einföld ástæða sé fyrir því, þar er tekið hart á ölvunar­akstri.

Anna segist á Facebook hafa lent í okri á Tenerife. Það var þó hlægilega léttvægt miðað við að fara á kaffihús í Vestur­bænum. „Mbl.is birti í gær mun á verðlagi á ýmsum vörum á Tenerife og Íslandi og ég fór að skoða tölurnar betur, allavega þær tölur sem ég þekki persónu­lega. Margt virðist vera rétt, en þó ekki alltaf og erfitt að alhæfa um einstöku tölur og vissulega kostar hálfslítra bjór­glasið tvær evrur á Þarnæstabar (The Buccaneer) eins og nefnt er í saman­burðinum,“ segir Anna á Facebook.

Hún segir að það sé helst okrað á Tenerife með því að rugla í magni bjórsins, pint reynist 0,4 lítrar. „Sumsstaðar er auglýst að einn pæntari af bjór á krana kosti allt niður í 0,9 evrur, en þá kemur spurningin, hvað er pæntari eða 1 pint? Ef breskur pæntari er skoðaður er hann 568 milli­lítrar en amerískur pæntari 473 milli­lítrar. Einu sinni lét ég glepjast af þessu fína tilboði niðri á strönd og fékk mér einn pæntara á 0,9 evrur. Kannan sem ég fékk bjórinn afgreiddan í var með magnmerki hvar á stóð 0,4 l(ítrar). Allt í góðu með það. Verðið samt miklu lægra en meðal­verðið. Ef ég svo álpast út til Del Duque í Adeje hækkar verðið verulega, en af því að ég vil ekki láta okra á mér sleppi ég því að fara þangað þótt ég sé snobb­hænsni dauðans,“ segir Anna.

Hún ber þetta svo saman við okrið í Vestur­bænum, og raunar Reykja­víkur í heild sinni. „Maður sem ég þekki leit inn á kaffihús í vesturbæ Reykja­víkur um daginn og blöskraði verðlagið, sneið af súkkulaði­köku á 1590 krónur  og bjór af krana 1400 krónur. Hann vildi meina að það væri lítill bjór, en mér sýndist samt af myndinni sem að bjórinn hafi verið af þessari nýju mælingu sem er 0,4 lítrar. Sjálf hefi ég ekki fengið mér bjór á veitinga­stað í Reykjavík í nokkur ár, en fróðlegt væri samt ef einhver hefur efni á að gera samanburð á verðlagi á börum á Íslandi úr því eitthvert kaffihús í vesturbæ Reykja­víkur selur bjór af krana á 1400  krónur, þá sennilega 40 cl,“ segir Anna.

Hún segir kók oft dýrara en bjór á Tenerife. „Sjálf ætla ég að halda mig við Þarnæstabar enn um sinn og kaupa minn bjór sem er 50 cl á 2 evrur eða þá á húsbarnum á 1,8 evrur. Til skemmtunar má geta þess að CokaCola er mun dýrara hér en bjór eða eins og sagði í Spánar­ljóði Sigurðar Þórarins­sonar:

“Þar kostar álíka klára­vínið

og krana­blávatnið okkur hjá.”

Varðandi hvítvínið, þá er ég dálítið snobbuð í þeim efnum og drekk helst Diamante sem er millisætt og kostar heilar 3,99 evrur í Mercadona, en 3,95 í HyperDino. Ég get svo alveg fengið ódýr vín á 2 evrur.“

Anna segist oft spurð hvort hví hún sé þá ekki sífellt að staupa í sig, fyrst það sé svona ódýrt. „Svo skilur fólk ekkert í því að ég skuli ekki vera full allan daginn alla daga. Ástæðan er einföld. Hér er bannað að aka undir áhrifum að viðlagðri ökuleyfis­sviptingu og háum sektum. Öðru ber einnig að fagna. Það er 500 evru sekt fyrir að aka á rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis, en 1000 evru sekt ef viðkomandi er kominn yfir efri mörkin. Ég hefi svo ekki hugmynd um hvar neðri eða efri mörkin liggja sem gerir að sjálfsögðu ekkert til fyrir mig sem fer eftir gullvægu reglunni. Eftir einn, ei drekki neinn.

Lilja systir er í fýlu út í mig. Ég vildi ekki keyra strákinn hennar á flug­völlinn eftir að ég var búin að fá mér hálfsexara eða eitt hvítvíns­glas fyrir matinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað