Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Gunnella leikkona er umhverfissinni: „Sjúklega mikið af grænmeti í plasti“

Gunnella Hólmarsdóttir
Gunnella Hólmars­dóttir

Neytandi vikunnar, Gunnella Hólmars­dóttir, er gift tveggja barna móðir og hunda­eigandi sem býr í Hafnar­firði. Hún er sjálfstætt starfandi leikkona, leik­stjóri og handrits­höfundur og kennir einnig yoga þegar tími gefst til. Hún er umhverfis­sinni og heldur úti instagram reikning sem heitir Hreinsum jörðina.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Þegar ég versla í matinn þá reyni ég að hugsa um nýtinguna á matnum. Ég versla sjaldnar og meira í einu og því mikilvægt að vita hvað maður þarf yfir vikuna. Með góðu plani finnst mér ég ná að spara mest og matarsóun verður mun minni.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Fyrir mér er mjög mikilvægt að endurnýta sem mest á heimilinu. Gömul slitin handklæði hef ég til dæmis nýtt sem fjölnota bómull. Tann­bursta, sýð ég alltaf og nýti áfram í ýmsar hrein­gerningar. Krukkur nota ég áfram undir mat og sultur. Ef það er eitthvað sem ég get ekki nýtt þá reyni ég að gefa það áfram til vina og fjöl­skyldu eða koma því á rétta staði.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Í fyrsta lagi hvaðan kemur varan? Hvar er hún framleidd og undir hvaða kringum­stæðum? Ég reyni að kaupa frekar vandaðar og helst umhverfis­vænni vörur en ekki. Ég hugsa mikið um pakkningarnar og reyni að öllum mætti að forðast plast og illa samsettar pakkningar sem flækja flokkun.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Grænmeti í plasti. Því miður er sjúklega mikið af grænmeti í plasti og því erfitt að komast hjá því. Skyndibita­matur er líka alltaf í plasti eða pakkningum og vildi ég óska að fleiri staðir biðu upp á að maður kæmi með fjölnota ílát.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Umhverfis­vernd skiptir mig öllu máli. Ef við stöndum ekki saman og erum stöðugt á varðbergi fer illa fyrir mann­kyninu. Fyrir mér er dæmið augljóst. Við verðum öll að gera eitthvað í okkar málum. Best finnst mér að hugsa, ég þarf ekki að gera allt ég þarf bara að gera eitthvað. Þannig reyni ég að minna mig á daglega að gera eitthvað sem er umhverfinu mínu í hag. Til dæmis með því að vera með bíllausan dag, fara út að plokka eða minnka kjöt­neyslu.

Annað sem þú vilt taka fram?
Ef við viljum breytingu, sama hver hún er. Þá verðum við sjálf að byrja breytinguna hjá okkur.

Á instagram reikningi mínum Hreinsum jörðina má sjá hvernig ég geri fallega gjafapoka úr morgunkornskössum, gömlum ónýtum bókum og öðru sem fellur til á heimilinu. Það er svo gaman að hugsa í lausnum og vera skapandi. Það er líka frábær fjöl­skyldu skemmtun og ég mæli með að þið prófið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning