Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Þjálfari í Sporthúsinu gaf konu við æfingar kinnhest – Fær ekki að koma aftur

„Þann 1. júlí sl. varð atvik í æfinga­tíma Superform sem við hörmum og þykir ákaflega leiðinlegt. Málið var strax tekið föstum tökum, rætt við hlut­aðeigandi og viðkomandi beðinn afsökunar. Í því samfélagi sem við eigum saman í Sport­húsinu og Superform gerum við þá kröfu til þjálfara, annarra starfs­manna og iðkenda að háttvísi sé í hávegum höfð í öllum samskiptum. Við viljum að öllum sem taka þátt í starfi okkar líði vel og upplifi sig örugga.“

Svo segir í færslu sem Ari Elíasson, eigandi Sport­hússins í Reykja­nesbæ, birtir í lokuðum Facebook-hópi viðskipta­vina Superforms, æfingarsstöðvar með húsakynni í Sport­húsinu. DV greinir frá þessu. Ljóst er að málið hefur verið litið alvarlegum augum, því Ari hefur tekið yfir starfsemi Superforms og þjálf­arinn sem fór yfir strikið mun ekki snúa aftur.

Þjálf­arinn er sagður hafa slegið konu kinnhesti sem var við æfingar hjá honum. Auk þess á hann að haf ausið yfir hana svívirðingum. DV ræddi við konuna sem varð fyrir ofbeldi þjálf­arans og staðfesti þá lýsingu í megin dráttum.

Ari lýkur svo fyrr­nefndri færslu furðu glaðhlakkalega, miðað við lýsingu DV. Hann segist einnig hafa jákvæðar fréttir, því Sport­húsið hafi verið að víga nýjan og glæsi­legan æfingasal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað