Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

„Gríðarlegt áfall fyrir snarólétta konu mína, þegar þau stóðu á tröppunum“

Halldór Hreinsson. Mynd úr einkasafni.
Halldór Hreins­son. Mynd úr einka­safni.

Halldór Hreinsson, eða Dóri í Fjalla­kofanum eins og hann er oft kallaður, er nýjasti gestur Reynis Trausta­sonar í hlaðvarps­þættinum Mannlífið.

Flestir útivistar­menn þekkja Halldór, enda hefur hann reynst mörgum vel í þeim geira. Hann er sjálfur útivistar­maður og hefur oftar en einu sinni komist í hann krappan í ævintýrum sínum. Halldór fer yfir víðan völl í viðtalinu, sem má í heild sinni lesa hér.

Mynd úr einka­safni

Halldór er þekktur fyrir greið­vikni meðal vina og kunningja. Hann er beðinn um að fara dálítið ofan í saumana á sögu um hann, sem blaða­maður hefur heyrt. Sagan snýst, að sögn blaða­manns, um Dani sem birtust á tröppum Halldórs og sögðust eiga að fá að vera heima hjá honum.

„Ég er ekki mikið fyrir að segja sögur af sjálfum mér. Ég læt bara verkin tala. Þarna var ég að ferðast með erlenda ferðamenn, fjöl­skyldu, sem var þarna í útreiðartúr á einum heitasta degi júlí­mánaðar. Ég stalst inn í vínbúðina á Hvols­velli til þess að kaupa mér eina kippu af Tuborg Gull, af því að ég átti þarna fjóra tíma aflögu á meðan þau voru á sínu hesta­ferðalagi.

Ég má aldrei einhvern ferðamann sjá öðruvísi en að athuga hvort allt sé í lagi, hvort hann sé eitthvað aumur. Ég sé tilsýndar þarna á þjóð­veginum, að þar er par, rykugt og illa farið af sól, svo ég stoppa og bara spyr; „hvor skal du hen?“ – reyni að beita minni dönsku. Þau koma bara inn í bílinn og ætluðu að fara síðasta sólar­hringinn á Vík, áður en þau færu heim. Ætluðu að komast í Reynis­fjöru og svona. Þau gera það, nema að ég gef þeim nátt­úrlega bara af mínum bjór. Ég spyr: „Er du torstig?“, og gaf þeim hvoru sinn bjórinn, og þau voru svo ánægð.

Nema hvað, þarna var ég með þessa ferðamanna­fjölskyldu inni á Hótel Skógum og ég sé að strák­pjakkurinn er með gítar. Ég spyr hann hvort hann sé að spila á þetta og hann segist vera búinn að læra í San Francisco. Ég segi þá að ég sé þarna inni á hótelinu og að það væri gaman ef hann kæmi kannski inn í kvöld­matinn og tæki nokkur lög. Ég nátt­úrlega átti ekki hótelið, en ég byrjaði á því að spyrja hótel­stýruna: „Ef hann kemur, má hann þá spila?“ Nema hvað, hótelið var smekk­fullt af Ameríkönum, þau koma þarna inn, hann sest í annað hornið á móti kærustunni sinni og hann byrjar. 

Ég gleymi að segja þér frá því, að þarna áttu þau fimm evrur eftir í ferðasjóð og áttu 36 eða 40 klukku­stundir eftir.

Það var gríð­ar­legt áfall fyrir snar­ólétta konu mína, þegar þau stóðu á tröpp­unum.

Hann byrjar að spila og þetta er svo fallegt, þetta er Mads Mouritz, sem átti nú reyndar íslenska kærustu eftir þetta, en ég ætla nú ekki að fara út í það. Þetta fannst mér vera næsti Kim Larsen Danmerkur, og það getur vel verið að hann sé á leiðinni þangað. En hann spilar þarna fjögur lög og það er staðið upp, það er klappað og hann þarf að taka aukalag og gerir það. Svo fara þau út og ég kem á eftir þeim, og hann segir: „Þarna komumst við í himnaríki og við erum hérna með 400 dollara eftir þetta, í tips.“ Þá segi ég að ef hann verði búinn að eyða þessu geti hann bara droppað við heima og gist á leiðinni út á völl. Ég var svo hughrifinn af þessum performans – ég á nátt­úrlega þessi lög, þessa diska og allt saman.

Það var gríðarlegt áfall fyrir snar­ólétta konu mína, þegar þau stóðu á tröppunum. Ég bað hana bara um að leyfa þeim að spila tvö lög inni í stofu. Ég kalla á nágrannana og er með svona smá stofu­konsert og eftir það voru ekki neinar áhyggjur; þau fengu bara að gista.“

Ýtið hér til að lesa helgar­viðtalið við Halldór Hreinsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Ofurkrúttleg íbúð í Þingholtunum komin á sölu
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá