Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

10 ástæður til að slíta sambandinu

Hvenær er vert að íhuga sambandsslit. Mynd/Envato Elements
Hvenær er vert að íhuga sam­bands­slit. Mynd/Envato Elements

Að slíta sambandi er aldrei auðvelt og erfitt getur verið að vita hvenær botninn er endanlega úr. Í pistli sem birtist á Psychology Today er reifað á tíu atriðum sem skera úr um hvenær samband er komið á endastöð.

Samskipti sem komin eru í þrot og áhuga­leysi annars eða beggja til að vaxa saman eru ágætis vísbendingar um að sambandið standi á brauð­fótum. Flestir stimpla sig út þegar sársauki og vonbrigði eru ríkjandi en óteljandi ástæður má finna fyrir sambands­slitum – en augljósustu ástæðurnar blasa oftast við.

Hér að neðan eru tíu vísbendingar um að vert sé að endur­hugsa sambandið:

Ofbeldi

Ef um einhvers konar ofbeldi er um að ræða; þar á meðal líkamlegt, andlegt, tilfinningalegt eða fjárhags­lega þá er tími til að leita sér aðstoðar og yfirgefa sambandið. Í þess konar aðstæðum er þarft að stíga hart niður.

Síendurtekið framhjáhald

Það getur verið þrautinni þyngra að vinna sig í gegnum sárs­aukann sem fylgir einu fram­hjáhaldi og að endur­byggja traust í sambandinu. Endurtaki það sig eftir slíka vinnu er ekki þess virði að endurtaka sárs­aukann aftur. Fyrir fjölmarga eru slík svik með öllu ólíðandi.

Samskiptaleysi

Ef þið eruð hætt að eiga uppbyggjandi og innihaldsrík samskipti er sambandið í dauða­teygjunum. Nærandi samskipti eru hornsteinn þess að vaxa saman. Ef ekkert er órætt og viðvarandi tilfinningalegt uppnám, þrátt fyrir ráðgjöf er vert að viðurkenna að sumir eiga einfald­lega ekki samleið.

Áfengis- og vímuefnavandi

Fíklar eiga ekki í samböndum  — þeir eru með gísla. Því lengur sem meðvirkni fær að grossera í sambandinu, þeim mun erfiðari reynist að rjúfa samskipta­mynstrið sem hefur skapast.

Langvarandi rifrildi

Ef undir­liggjandi gremja og reiði ræður ríkjum þrátt fyrir sambands­ráðgjöf má vera að vandinn sé orðinn það mikill að ekki er hægt að komast yfir hann. Þegar sárs­aukinn er orðinn lang­varandi þá gefast flestir upp.

Neitar að fara í ráðgjöf

Ef annar aðilinn vill fara í sambands­ráðgjöf þá þurfa báðir að fara. Ef annað ykkar vill ekki leita aðstoðar er það skýrt merki um að ekki sé áhugi á að vinna í sambandinu. Og án réttrar vinnu og sjálfs­skoðunar munu öll sambönd deyja.

Illska og reiði

Þegar maki þinn er ekki góður við þig, er það merki um dýpri undir­liggjandi vandamál sem hafa áhrif á báða aðila í sambandinu. Einhverjir geta verið ósnortnir ef einhver er viðstöðu­laust reiður út í þá en aðrir geta það ekki.

Samþykkir ekki börnin þín eða gæludýr

Ef makinn þolir illa börnin þín skapast stöðugt andríki. Slík hið sama á við um gæludýrin þín sem fyrir mörgum eru eins og afkvæmi. Ef maka þínum líkar ekki við einhvern eða eitthvað sem þú elskar mun það bara skapa ósætti. Annað hvort þarf að laga það strax eða slíta sambandinu.

Ríkjandi andlegt ofbeldi

Ef maki þinn gerir lítið úr þér heima fyrir eða annarra viðurvist, lýgur að þér, uppnefnir eða kallar þig „geðveikan“, þá er viðkomandi að reyna að stjórna þér. Slík framkoma er ekki líðandi í heil­brigðu sambandi.

Þegar makinn vill ekki meira – þá er það búið

Leyfðu viðkomandi að fara og haltu áfram með líf þitt.

Það er auðveldara sagt en gert að slíta sambandi og miklar tilfinningar sem fylgja. En vert er að muna að því fyrr sem þú heggur á hnútinn, því fyrr mun sárið gróa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt