Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Halldór upplifði harmleik sem björgunarsveitarmaður: „Það er verið að leita að félaga þínum“

Halldór í faðmi fjölskyldunnar. Mynd úr einkasafni.
Halldór í faðmi fjöl­skyld­unnar. Mynd úr einka­safni.

Halldór Hreinsson, eða Dóri í Fjalla­kofanum eins og hann er oft kallaður, er nýjasti gestur Reynis Trausta­sonar í hlaðvarps­þættinum Mannlífið.

Flestir útivistar­menn þekkja Halldór, enda hefur hann reynst mörgum vel í þeim geira. Hann er sjálfur útivistar­maður og hefur oftar en einu sinni komist í hann krappan í ævintýrum sínum. Halldór fer yfir víðan völl í viðtalinu, sem má í heild sinni lesa hér.

Halldór Hreins­son. Mynd úr einka­safni.

Halldór hefur verið björgunar­sveitar­maður í áratugi. Í því hafa verið skin og skúrir; stundum hefur hann þurft að takast á við mikla sorg. Eitt sinn var hann kallaður út upp í Esju þar sem hann kom að hræðilegum vettvangi.

„Horfandi á síðustu daga, hvað það er mikilvægt að eiga og hafa svona apparat sem björgunar- og hjálpar­sveitir skáta eru. Ég var og er enn virkur meðlimur í Hjálpar­sveit skáta í Reykjavík. Það að hafa svona apparat hér, á þessu landi, er svo mikilvægt og það er svo mikil fórnfýsi hjá þessu fólki, þótt það sé lítið um það, að ég komi að þá er maður ennþá að einhverju leyti í einhverju baklandi.

Það er svo mikil fórn­fýsi hjá þessu fólki.

Þarna voru þannig aðstæður að við vorum ennþá í nýliða­þjálfun og við erum kölluð út. Í nýliða­þjálfun ertu kallaður út í alls konar, til þess að athuga hvort þú hafir til brunns að bera það sem þarf. Við erum kölluð í snjóflóða­leit upp í Esju og þú heldur að þetta sé bara ein kvöldæfing af mörgum. Svo þegar þú áttar þig á því, að það er verið að leita að félaga þínum, þá nátt­úrlega tekur það gríðar­lega á og mikil sorg í kringum það, en þarna stuttu seinna er ég kominn til þess að stýra Skáta­búðinni og þá var, og er reyndar enn, þannig starfs­mannahald að 80 til 90 prósent starfs­manna voru félagar í hjálpar­sveit og björgunar­sveit, og í kringum snjó­flóðin fyrir vestan, á Flateyri og Súðavík, þá sendi maður þá alla, alla félagana, til leitar.

Ég stóð einn eftir til þess að aðstoða með aukabúnað, það þurfti að ná í fleiri skóflur, eða snjóflóða­stangir, eða húfur eða vettlinga eða „what ever“. Þannig að þetta er virkilega mikils virði, þetta fólk sem gefur sig í svona starf. Það fær mikla lífs­reynslu og svona öðruvísi lífssýn.“

Í snjó­flóðinu í Esjunni fórust tveir. „Einn sem komst undan og gat látið vita.“

Ýtið hér til að lesa helgar­viðtalið við Halldór Hreinsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Ofurkrúttleg íbúð í Þingholtunum komin á sölu
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá