Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Brynjar montar sig af því hvað hann er leiðinlegur: „Allt er þetta mjög lýsandi um minn karakter“

Óhætt er að segja að Brynjar Níelsson, vara­þingmanni Sjálfstæðis­flokksins, finnist það dyggð en ekki skömm hve leiðinlegur hann er. Í það minnsta er það eitt algengasta umræðu­efni hans á Facebook og nú í hádeginu birtir Brynjar enn einn pistil um hvað hann er leiðinlegur. Að þessu sinni ræðir hann hve líkur hann sé nokkrum þekktum fúlmennum úr skáld­verkum, og virðist stoltur af því. Færslan fær þó tugi hlátur-læka svo sitt sýnist hverjum um hversu leiðinlegur hann er.

Pistill Brynjars í heild sinni

Nú er svo komið að ég fer í taugarnar á sífellt fleira fólki. Sennilega stutt í það að ég verði einstæðingur búandi í bakhúsi á Grettis­götu. Meira að segja Björn Leví, sem ég hélt að elskaði mig, er um það bil að bugast. Hann kemur gjarnan á fésbókar­vegginn minn og kvartar yfir að ég uppnefni menn lista­spírur, gáfnaljós, skatta­kónga og þar eftir götunum. Ég hélt að þetta væru bara góð nafnorð sem væru lýsandi fyrir viðkomandi og síður en svo niðrandi.

Í mínum kreðsum er ég uppnefndur Morrinn, sem er þekkt persóna úr Múmínálfunum og þykir neikvæður og hornóttur. Þegar nær dregur jólum er ég gjarnan kallaður Ebenezer Scrooge, sem er ekki ólíkur Morranum en mjög nískur að auki. Allt er þetta  mjög lýsandi um minn karakter nema kannski nískan. Þetta er ekki níska heldur er ég að styðja seðla­bankastjóra í barátt­unni við verð­bólguna og vextina.

Vel getur verið að þessi karakter­einkenni mín séu merki um mikla vanlíðan. En ég tel að forréttinda­karlar, sem upplifi sig sem kúgaðar íranskar konur í klerka­veldinu, þjáist af mun meiri vanlíðan. Hugur minn er samt mest hjá starfs­mönnum stjórnar­ráðsins sem standa sveittir alla daga við að svara fárán­legum spurningum frá þing­mönnum, sem halda að þjóðin hafi kosið þá til að hafa eftirlit með öllum. Ég mæli með að þessir þingmenn spyrji herra Google fyrst. Það eru meiri líkur á að hann geti svarað þessum spurningum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning