Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Brynjar fer ekki á fleiri elliheimili fyrir kosningar: „En þú ertu svo assskoti veiklulegur að sjá“

Brynjar Níelsson Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir
Brynjar Níelsson Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Brynjar Níelsson barmar sér yfir erf­iðri kosn­inga­bar­áttu í nýlegri Facebook-færslu.

Lög­mað­ur­inn og fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins skrif­aði færslu á Facebook í gær sem vakið hefur lukku enda full af húmo og háði. Já og svo skýtur hann á Viðreisn, enda er flokk­ur­inn að taka hell­ing af fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í skoð­ana­könn­unum.

„Að standa í kosn­inga­bar­áttu með til­heyr­andi mynda­tökum og sam­skiptum við ókunn­ugt fólk er ekki létt verk fyrir mann eins og mig. Ég á ekki marga óvini en mynda­vélin og ég eigum enga sam­leið. Fólk sem hittir mig í fyrsta sinn segir gjarnan að ég sé ekki næstum því eins ófríður í eigin per­sónu. Svo er mjög stressandi að vera í fram­boði þegar maður man ekki hvað maður skrif­aði á upp­hafs­árum nets­ins.“ Þannig hefst færsla Brynjars.

Segir Brynjar að hann ætli aldrei aftur á elli­heim­ili í kosn­inga­bar­átt­unni, eftir bitra reynslu.

„Kosn­inga­bar­áttu til­heyrir að fara í heim­sókn á elli- og hjúkr­un­ar­heim­ili. Ég var á Grund í gær og var búinn að safna í kringum mig hóp af vist­mönnum og messa yfir þeim um ágæti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í þó nokkurn tíma þegar virðu­leg frú á tíræð­is­aldri spurði mig mjög ákveðið: „Ertu búinn að búa lengi hérna á Grund“? Ég mald­aði eitt­hvað í móinn að sagð­ist nú vera aðeins 64 ára gam­all. „En þú ertu svo ass­skoti veiklu­legur að sjá“ sagði hún þá. Þá kvaddi ég og til­kynnti kosn­inga­stjórn­inni að ég færi ekki á fleiri svona heim­ili.“

Að lokum notar Brynjar tæki­færið og hnýtir í Viðreisn, enda stutt í kosn­ingar og staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins hræði­leg í skoð­ana­könn­unum.

„Ég hef tals­vert verið í heim­sóknum í lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki. Er greini­lega ekki eins þekktur og mætti halda því starfs­menn kann­ast venju­lega ekk­ert við þennan mann. Þegar ég byrja að tala halda margir að hér sé Sig­mundur Davíð á ferð og einn hélt meira að segja að ég væri Tómas í Tomma­borg­urum. Segja að ég tali óskýrt og syfju­legur að sjá. En það fyrsta sem ég er gjarnan spurður að í þessum heim­sóknum er hver beri ábyrgð á þess­ari jafn­launa­vottun, sem sé full­kom­lega gagns­laust fyr­ir­bæri og kosti fyr­ir­tækin margar millj­ónir á´hverju ári. Þetta sé veru­legur baggi á litlum fyr­ir­tækum. Ég bendi þeim á að þetta hafi verið frá upp­hafi stærsta mál Við­reisnar, frjáls­lynda umbóta­flokks­ins?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið