Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ýmsir nafntogaðir menn í golfhópnum Stullunum: Forstjórar og frægðarmenni

Þeir Logi, Þórður og Hreggviður hafa allir spilað með Stullunum.
Þeir Logi, Þórður og Hregg­viður hafa allir spilað með Stull­unum.

Golf­hópurinn sem hefur verið í umræðunni í tengslum við ásakanir Vítalíu Lazarevu á hendur þjóð­þekktum mönnum, telur ýmsa nafn­togaða meðlimi. Arnar Grant var áður í hópnum en hefur nú, samkvæmt heimildum Mannlífs, verið bolað þaðan út. Samkvæmt heimildum Mannlífs hefur fjármála­ráðherra verið meðal meðlima í gegnum tíðina, þótt lítið hafi farið fyrir honum síðustu ár.

Logi Bergmann Eiðsson

Golf­hópurinn komst fyrst í umræðuna í tengslum við mál Vítalíu þegar ásakanir hennar á hendur fjölmiðla­manninum Loga Bergmanni Eiðssyni litu dagsins ljós. Þar sagði hún hóp manna í golf­klúbbi hafa verið stadda í golfferð þar sem gist var á hóteli. Hún hafi seinna komið á hótelið og segir Loga Bergmann hafa farið yfir mörk hennar kynferðis­lega um kvöldið.

Þórður Már Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Festar.

Logi Bergmann er þó ekki eini maðurinn í þeim golf­klúbbi sem Vítalía hefur sakað um misgjörðir. Þannig eru þeir Þórður Már Jóhannesson og Hreggviður Jónsson einnig meðlimir. Þeir eru tveir þeirra þriggja manna sem Vítalía hefur sakað um að hafa brotið gegn sér í heitum potti í sumar­bústaði í eigu Þórðar Más.

Hregg­viður Jónsson

Vítalía lýsti því í samtali við Mannlíf um liðna helgi hvernig Þórður Már hafi verið sá sem braut harkalegast á henni. Hún segir hann meðal annars hafa meinað henni að yfirgefa bústaðinn.

Einn virkasti golffélagsskapur landsins

Golf­hópurinn sem um ræðir gengur undir nafninu Stullarnir. Stullarnir hafa lengi verið einn virkasti golf­félags­skapur landsins og einn sá þekktasti. Hann var stofnaður árið 2004 og nafnið kemur að sögn Loga Bergmanns frá Alabama, þar sem nokkrir úr hópnum voru við nám.

Pétur Þór Hall­dórs­son, for­stjóri S4S.
Hermann Guð­munds­son, for­stjóri Kemi.

Klúbburinn hefur í gegnum tíðina talið, auk ofan­greindra meðlima, menn á borð við Sigurð Kára Kristjánsson lögmann, Stefán Hilmarsson söngvara og Kristján Pálsson forstjóra Jónar Transport. Aðrir meðlimir eru Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi, Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, og Pétur Þór Halldórsson, forstjóri S4S.

Samkvæmt heimildum Mannlífs hefur Bjarni Benediktsson, fjármála­ráðherra í ríkis­stjórn Íslands, verið meðlimur í Stullunum í gegnum tíðina en lítið spilað með þeim síðustu ár.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Sakaðir um svindl

Stein­grímur Gautur Pét­urs­son.

Stein­grímur Gautur Pétursson, aðal­ritari Stullanna, var í desember dæmdur í mánaðar­langt skráningar­bann af aganefnd Golf­klúbbs Reykja­víkur. Bannið tók gildi við upphaf tíma­bilsins í vor. Var það vegna meints svindls Stullanna við bókun rástíma. Málið vakti mikla óánægju meðal kylfinga, en með vaxandi vinsældum íþróttarinnar hér á landi hefur sífellt orðið erfiðara að bóka rástíma og setið er um þá þegar bókanir hefjast. Stein­grímur Gautur hefur haldið því fram að ekki hafi verið um svindl að ræða, en sagst ekki hafa nennt í slag og fremur viljað að málum yrði lokið með þessum hætti.

Þær sakir sem bornar voru á Stullana voru þess efnis að þeir hefðu, með hjálp tölvu­kerfis, tryggt sér rástíma á undan öðrum kylfingum. Forrit­arinn Guðni Þór Björnsson steig fram í nóvember síðastliðnum og sagðist vera höfundur forrits, eða „scriptu“, sem gerði golf­hópnum kleift að bóka rástíma á leiftur­hraða.

„Ég deildi þessari script-u með einum vini mínum, fellow golfara og tölvunar­fræðingi sem fékk mitt leyfi til þess að nota scriptuna. Hann hefur tengsl í þennan Stulla hóp sem fjallað hefur verið um,“ sagði Guðni Þór í pistli sem hann skrifaði um málið á sínum tíma.

Vildu ekki taka afstöðu

Vítalía Lazareva sagðist í samtali við blaðamann Mannlífs um liðna helgi hafa rætt mál sitt við Steingrím Gaut. Svörin hefðu verið á þá leið að málið yrði skoðað. Að endingu hefði ákvörðunin verið sú að hópurinn vildi ekkert aðhafast í málinu, „því hópurinn vildi ekki taka neinar hliðar.“ Arnari Grant hafi þó verið bolað út úr félags­skapnum. Með því sagði Vítalía að hópurinn væri sannarlega að taka afstöðu.

„Málið er í farvegi. Þeir vilja leyfa þessum mönnum að spila en ekki Arnari,“ segir Vítalía. Hún segir þá þannig vera að hlífa meintum kynferðis­afbrota­mönnum.

Vítalía sagðist nýverið hafa farið með mál sitt á hendur mönnunum þremur úr sumar­bústaðnum, til kynferðis­brota­deildar lögreglu. Ekki eru heimildir fyrir því hvort kæra sé komin í ferli.

Golfið endurspeglaði lífið

Ragn­heiður Jóns­dóttir skrifaði á golf1.is þann 8. janúar, þegar ljóst var um tengingu Stullanna og meintra gerenda í máli Vítalíu:

„Það aftur á móti sýnir hversu sönn orð Tiger Woods eru, sem hann lét eitt sinn falla, um að „golfið endur­speglaði lífið.“ T.d. og það á vel við hér: Ef brotið er af sér í golfi þá eru líkur á því að sá sami eða sömu aðilar geri það einnig í lífinu eða öfugt, sá sem gerist brotlegur í lífinu, brýtur einnig af sér í golfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá