Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Halldór lenti í alvarlegu hjólreiðaslysi á Grensásveginum: „Þá fer öxlin í kássu“

Halldór Hreinsson. Mynd úr einkasafni.
Halldór Hreins­son. Mynd úr einka­safni.

Halldór Hreinsson, eða Dóri í Fjalla­kofanum eins og hann er oft kallaður, er nýjasti gesturinn í hlaðvarps­þættinum Mannlífið.

Flestir útivistar­menn þekkja Halldór, enda hefur hann reynst mörgum vel í þeim geira. Hann er sjálfur útivistar­maður og hefur oftar en einu sinni komist í hann krappan í ævintýrum sínum. Halldór fer yfir víðan völl í viðtalinu, sem má í heild sinni lesa hér.

Halldór Hreins­son. Mynd úr einka­safni.

Halldór lenti eitt sinn í alvarlegu hjólreiða­slysi þegar leið hans lá um Grensás­veginn í Reykjavík.

„Ef maður færi að hátta sig hérna í stúdíóinu hjá þér, þá eru ör og mein hér og þar, allt tengt þessu rugli í manni; hjólreiða­slys, mest skíðaslys. En ég segi það nátt­úrlega öllum sem heyra vilja, að ég dett ekki. Ég dett ekki á skíðum og ég dett ekki á hjóli, en svo þegar maður er kominn á skýluna fær maður spurningarnar: „En þetta? En þetta?“. 

Þarna á Grens­ás­veg­inum er ég bara á fullu adrena­lín­blasti.

Nýbúinn að upplifa enn eina fæðingu, fá eina æðislega dóttur í fjöl­skylduna; Fanndísi, og mér halda engin bönd. Þannig að ég hjóla bara eins og ég væri á bíl. Ég er örugglega að hjóla á 50 kílómetra hraða og ég veit að þegar þú ert að taka Grensás­veginn í suðurátt, þá eru þeir á bensín­gjöfinni, þessir sem eru á Miklubrautinni á leiðinni austur úr. Ég sé að það er að detta í gult og ég læt mig vaða yfir. Það verður rautt svona þegar ég er að fara framhjá bílunum, svo ég hendi mér á hjólinu inn á svona millieyju og bjarga mér þar.“ 

Þar lenti Halldór í vandræðum og varð að bremsa af fullum krafti. „Ég bara lendi á kantsteini sem ég gat ekki hoppað upp á. Þeir voru hér áður fyrr, allavega í Vestur­bænum, svona ávalir, þannig að þú gast hoppað upp á þá, en þarna var hann bara þver, svo ég flýg í loft upp. Ég segi nú að þarna hafi tvær hellur brotnað; fyrst böggla ég hausnum niður, hjálmurinn helst á, sem betur fer, en brotnar. Ég fer með öxlina í aðra hellu og brýt hana, og þá fer öxlin í kássu og svo enda ég á bakinu. Þar var ég með svona góða mittis­tösku með vatni og peysu, sem tók svolítið bakhöggið. Svo kemur einhver annar á hjóli og spyr: „Get ég hjálpað þér? Ertu eitthvað slasaður?“ og ég var svo ruglaður og vitlaus að ég sagði: „Nei, nei, allt í lagi“ og dröslaði helvítis hjólinu bara þarna suður úr, yfir hálsinn, beint niður á bráða­móttöku. 

Ég fer með öxl­ina í aðra hellu og brýt hana, og þá fer öxlin í kássu.

Í stuttu útfærslunni, þá segja læknar og hjúkkur – æðisleg öll sem vinna þar – að þetta líti ekki vel út og ég muni eiga mein og hreyfi­getan muni takmarkast mjög. Þau setja mig í fatla og ég get mig varla hreyft og það er verið að sýna mér myndir þar sem höndin hefur eiginlega bara farið úr slíðrinu.“

Ýtið hér til að lesa helgar­viðtalið við Halldór Hreinsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Ofurkrúttleg íbúð í Þingholtunum komin á sölu
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá