Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Segist vera ástæðan fyrir afbrýðisemi Johnny Depp

Með þessum yfir­lýs­ingum varpar Del­evingne nýju ljósi á eitt umdeildasta skiln­að­ar­mál í sögu Hollywoood

Delevingne lýsti því þannig að þær Heard hefðu lengi verið nánar vinkonur
Del­evingne lýsti því þannig að þær Heard hefðu lengi verið nánar vin­konur Mynd: Skjáskot

Cara Del­evingne opnar sig um Amber Heard, Elon Musk og Harvey Weinstein í nýjum hlað­varps­þætti The Louis Theroux Podcast í umsjón breska sjón­varps- og fjöl­miðla­manns­ins Louis Theroux. Um að ræða 4. þátt í 8. seríu þátt­ar­ins (S8 EP4) sem kom út í lok júní 2026. Heiti þátt­ar­ins á hlað­varpsveitum er „Cara Del­evingne discusses gett­ing sober, enga­gement rumours, and being Karl Lag­er­feld's muse“. Í þætt­inum ræddi hún meðal ann­ars um afbrýði­semi leik­ar­ans Johnny Depp, fyrr­ver­andi eig­in­manns Heard.

Breska fyr­ir­sætan og leik­konan Cara Del­evingne hefur í fyrsta sinn að hún hafi átt í róm­an­tísku sam­band við leikkon­una Amber Heard.

Í við­tal­inu vék Theroux tali sínu að meintri afbrýði­semi Depps í garð Del­evingne. Hún tók fram að ekk­ert róm­an­tískt hefði átt sér stað á milli kvenn­anna á meðan á tökum stóð á kvik­mynd­inni London Fields, þar sem þau unnu öll saman. Hins vegar hafi það ekki komið í veg fyrir að Depp yrði „óður af afbrýði­semi“, að sögn Del­evingne. Hún full­yrðir að sam­bandið hafi ekki haf­ist fyrr en eftir að Heard og Depp ákváðu að skilja.

Del­evingne lýsti því þannig að þær Heard hefðu lengi verið nánar vin­konur áður en þær „náðu saman“ í róm­an­tískum skiln­ingi á meðan á skiln­að­ar­ferl­inu stóð. Þá gaf hún jafn­framt í skyn að Heard hafi hitt fleiri aðila á þessum tíma. Þegar Theroux nefndi auð­jöf­ur­inn Elon Musk til sög­unnar, svar­aði Del­evingne stutt og laggott: „Þarna sérðu.“ Heard og Musk áttu í storma­sömu sam­bandi eftir að hún skildi við Depp árið 2016. Uppgjör þeirra Heard og Depp náði hámarki í mjög umtöl­uðu meið­yrða­máli árið 2022.

Í sama við­tali ræddi Del­evingne eigin kyn­hneigð og upp­götv­un­ar­sögu. Hún rifj­aði upp að kvik­mynda­fram­leið­and­inn Harvey Weinstein, sem síðar var dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot, hefði á sínum tíma varað hana við því að hún myndi aldrei ná frama í Hollywood ef fólk héldi að hún væri sam­kyn­hneigð. Del­evingne við­ur­kenndi að hún hefði trúað þeim hót­unum um ára­bil.

Með þessum yfir­lýs­ingum varpar Del­evingne nýju ljósi á eitt af umdeild­ustu og storma­söm­ustu skiln­að­ar­málum í sögu Hollywood.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Abdul El-Sayed segist tilbúinn að láta forsetann fá heiðurinn af opinberu heilbrigðiskerfi, styðji hann að allir Bandaríkjamenn fái aðgang að þjónustu.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Pólitík

Segir Hildi Björns­dóttur beita tvö­földum mæli­kvarða á fjár­mál borg­ar­innar

Heimur

Brand óskaði eftir auka­teppi og sér­sjampói í fang­els­inu

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Heimur

Heimur

Svif­vængja­flug­maður lést í hörmu­legu slysi

Hann var 21 árs og hafði vakið athygli fyrir áhættusamar flugæfingar
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Ung­lingar hand­teknir í Póllandi grun­aðir um und­ir­bún­ing hryðju­verka

Heimur

Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að eft­ir­sjá vegna kyn­leið­rétt­ingar er afar sjald­gæf

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael