Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Rússar stækka „skuggaflota“ sinn

Flest skipanna eru skráð á skúffu­fyrirtæki sem tengjast Rússlandi.

Olíuflutningaskip úr skuggaflotanum
Olíu­flutn­inga­skip úr skugga­flot­anum Rússar eiga mun fleiri olíu­skip í skugga­flota sínum en LNG skip. Mynd: THIBAUD MORITZ / AFP

Rússland hefur stækkað svokallaðan „skugga­flota“ sinn til flutninga á fljótandi jarðgasi (LNG) með því að bæta við bæði notuðum gasflutningaskipum og fyrstu tankskipunum sem smíðuð hafa verið innanlands. Þetta kemur fram í umfjöllun Financial Times sem byggir á gögnum frá greiningar­fyrirtækinu Windward.

Samkvæmt greiningunni hefur skugga­floti Rússa fyrir LNG-flutninga stækkað í 25 skip á síðustu sex mánuðum. Þar af eru að minnsta kosti átta notuð tankskip og tvö ný skip sem smíðuð voru í Zvezda-skipasmíða­stöðinni í Rússlandi.

Flest skipanna eru skráð á skúffu­fyrirtæki sem tengjast Rússlandi og eru með skráningu í lögsögum á borð við Dúbaí, Hong Kong og Singapúr.

Stærsti aðilinn á rússneskum LNG-markaði er Novatek. Yamal LNG-verksmiðja fyrir­tækisins í Síberíu og Arctic LNG 2-verkefnið, sem sætt hefur refsiaðgerðum Vestur­landa, standa saman undir meira en 65 prósentum af fram­leiðslu Rússlands á fljótandi jarðgasi. Um 30 prósent fram­leiðslunnar koma frá Sakhalin-2-verkefni Gazprom í Austur­löndum fjær.

Financial Times segir Kína vera stærsta kaupanda gass frá Arctic LNG 2. Samkvæmt mati blaðsins og greiningar­fyrir­tækisins Kpler annast ellefu skip, sem eru að meðaltali tíu ára gömul, flutninga frá verk­efninu. Farmurinn er síðan fluttur yfir á hefð­bundin tankskip við fljótandi umskipunar­stöðvar áður en hann heldur áfram til Kína.

Stækkun gasflutninga­flotans á að gera Moskvu kleift að halda áfram útflutningi á LNG þegar bann Evrópu­sambandsins við innflutningi á rússnesku fljótandi jarðgasi tekur gildi 1. janúar 2027. Fyrir­myndin er svokallaður skugga­floti olíu­flutninga­skipa, sem telur nú yfir eitt þúsund skip.

Financial Times bendir þó á að uppbygging skugga­flota fyrir gasflutninga hafi gengið hægar en fyrir olíu­flutninga þar sem LNG-skip eru mun tæknilega flóknari.

Frétta­stofan Reuters greindi frá því að Novatek hefði stöðvað fram­leiðslu á fljótandi jarðgasi í Arctic LNG 2-verk­efninu í apríl 2024 vegna refsiaðgerða og skorts á sérhæfðum flutninga­skipum. Þá hafði fyrir­tækið aðeins þrjú sérsmíðuð skip til umráða af þeim fimmtán sem fyrir­huguð voru árið 2020.

Til stóð að bann við flutningum á rússnesku LNG til þriðju ríkja yrði hluti af 21. refsiaðgerða­pakka Evrópu­sambandsins gegn Rússlandi. Grikkland lagðist hins vegar gegn þeirri tillögu, meðal annars með hagsmuni skipa­félagsins Dynagas að leiðar­ljósi, og var ákvæðið að lokum fellt út úr nýjasta refsiaðgerða­pakkanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár