Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Sálfræðingur segir eineltisrannsókn Kristínar Helgu alvarlega gallaða

Megin­markmið rann­sóknar Kristínar Helgu var að skoða birtingar­myndir eineltis af hálfu kvenkyns gerenda á vinnu­stöðum

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Zhivko Minkov/Unsplash

Vigdís Ásgeirs­dóttir, mannauðs­ráðgjafi, sálfræðingur og meðeigandi hjá Lífi og sál, telur alvarlegan ágalla á nýlegri rannsókn um einelti á vinnu­stöðum að ekki hafi verið staðfest með formlegum hætti að þátt­takendur hennar hefðu orðið fyrir einelti.

Þetta kemur fram í aðsendri grein Vigdísar á Vísi þar sem hún fjallar um meistara­ritgerð Kristínar Helgu Magnúsdóttur, sem nýverið útskrifaðist úr heilbrigðis­vísindum frá Háskólanum á Akureyri með áherslu á sálræn áföll og ofbeldi.

Megin­markmið rann­sóknar Kristínar Helgu var að skoða birtingar­myndir eineltis af hálfu kvenkyns gerenda á vinnu­stöðum og líkamlegar og sálrænar afleiðingar þess fyrir þolendur.

Vigdís fagnar því að einelti og áhrif þess fái aukna athygli og segir rannsóknar­efnið mikilvægt. Niður­stöðurnar bendi meðal annars til þess að einelti af hálfu kvenna birtist gjarnan með óbeinum hætti, til dæmis í félagslegri útilokun, niður­lægingu og gaslýsingu. Slík hegðun geti verið duldari og því erfiðari fyrir bæði starfs­fólk og stjórn­endur að greina og stöðva.

Vigdís segir reynslu Lífs og sálar af EKKO-málum, sem snúa að einelti, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi, að mörgu leyti styðja þessar niður­stöður.

Hún gagnrýnir þó að þátt­takendur rann­sóknarinnar hafi verið skilgreindir sem þolendur eineltis án þess að fyrir lægi óháð stað­festing á að hegðunin sem þeir upplifðu félli undir skilgreiningu eineltis.

Vigdís segir að af eineltis­málum sem Líf og sál hafi tekið til úttektar undan­farin 25 ár hafi niður­stöður stutt kvörtun um einelti í um 20 prósentum tilfella. Í 30 prósentum hafi verið um einstök neikvæð eða erfið samskipti að ræða en í helmingi tilfella hafi aðrar ástæður skýrt vanlíðan viðkomandi.

Hún tekur þó fram að ekki eigi að draga vanlíðan fólks í efa. Ýmsir þættir geti valdið alvarlegri vanlíðan á vinnustað án þess að um einelti sé að ræða, svo sem slakir stjórnunar­hættir, streita, álag, neikvæð samskipti eða erfið­leikar utan vinnu.

Vigdís telur jafnframt mikilvægt að meintir gerendur fái að koma sjónar­miðum sínum á framfæri þegar eineltismál eru rannsökuð.

Hún segir mikil­vægustu niður­stöður ritgerðarinnar snúa að ábyrgð stjórn­enda, verk­ferlum og viðbrögðum vinnu­staða við kvörtunum. Að lokum þakkar hún Kristínu Helgu fyrir að vekja athygli á málefninu og leggur til að næsta rannsókn taki til fólks sem staðfest hefur verið með formlegum hætti að hafi orðið fyrir einelti á vinnustað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Sveitarfélagið taldi eigendur kattarins ekki eiga aðild að máli um eftirlit með hundahaldinu og synjaði þeim um aðgang að gögnum.
Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis