Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Frænka Halldóru fékk ekki að nota kannabis í dauðastríðinu: „Bara ótrúlega ljót framkoma“

Halldóra við vinnustað sinn.
Halldóra við vinnu­stað sinn. Mynd: Aðsend

Hamp­félagið stendur á bakvið HAMPKASTIÐ sem eru umræðu­þættir í hljóði og mynd og fjalla að sjálfsögðu um HAMP. Þátta­stjórnendur eru stjórnar­menn Hamp­félagsins Sigurður Hólmar og Þórunn Þórs. Gunnar Dan Wiium sér um úrvinnslu og fréttar­skrif og Sigfús Óttarsson um tæknimál. Gestir þáttarins verða bæði íslenskir og erlendir sérfræðingar á sínu sviði um nýtingu hamps. 

Nýjasti gestur Hamp­kastsins er þingkona Pírata, Halldóra Mogensen. Halldóra er mikil baráttu­manneskja fyrir hampinn enda mikil náttúru­manneskja. Móðir hennar starfar sem grasa­læknir og nálastungu­sérfræðingur og því má segja að Halldóra alist upp við óhefðbundnar og náttúrlegar lækningar frá blautu barns­beini. Þar að auki ólst hún upp í sveitum Bretlands og segir að þar hafi þótt eðlilegt að fólk reykti Kannabis. Hún segir að þar hafi kannabis ekki verið eins mikið tabú og hún upplifði svo á Íslandi.

Halldóra í Alþing­is­hús­inu.

Fékk ekki að lina sárs­aukann

Frænka Halldóru greindist með krabba­mein sem svo dró hana síðar til dauða en hún notaði einmitt kannabis til að lina kvalir sínar á meðan á meðferð stóð. Hún notaði olíu sem hjálpaði henni gríðar­lega en lögreglan tók af henni olíuna og segir Halldóra að henni hafi fundist það svo gríðar­lega ljótt að upplifa að eitthvað sem var að auka lífsgæði frænku sinnar á erfiðum tímum, væri svo bara tekið af henni í nafni ómanneskjulegs reglu­verks.

„Þessi jurt hjálpaði henni mjög mikið. Hún var með olíu. En auðvitað var þetta alveg kolólöglegt hér heima og erfitt fyrir hana að fá þetta og annað. En þetta aðstoðaði hana alveg gríðar­lega að líða betur. Lífsgæðin hennar voru að aukast. Þetta aðstoðaði hana við að líða betur á meðan á erfiðasta tímanum stóð. En svo fékk hún þetta ekki, lögreglan tók þetta af henni og annað og mér fannst þetta vera svo gríðar­lega ljótt. Að koma fram við manneskju sem er að berjast fyrir lífi sínu, þú ert að að reyna að auka lífsgæðin þín og hvað, þú mátt ekki nota það meðal sem aðstoðar þig að líða betur í veikindunum þínum. Á sama tíma er ekkert sem læknar geta boðið henni sem er að aðstoða hana á þann hátt sem hún er að sækjast eftir. Þannig að mig langaði til að leggja fram mál til að leiðrétta þetta því mér fannst þetta bara ótrúlega ljót framkoma og ég veit að það er mikið af fólki hér á Íslandi sem að sækist í þetta til að aðstoða þau í þeirra veikindum út af því að þetta er að bjóða upp á eitthvað sem hefð­bundin lyf geta ekki boðið.“

Að verða vitni að þessu óréttlæti sem frænka hennar varð fyrir gerði það að verkum að Halldóra ákvað að gera allt sem hún gæti til að leggja sitt á voga­skálarnar í barátt­unni við að lögleiða kannabis.

Kerfið innra með okkur

„Þetta er partur af því hver við erum, þetta allt í kringum okkur, inn í líkamanum okkar, í heilanum okkar og í raun bara ótrúlegt að segja að þessi planta sem er búið að rannsaka svona mikið sé bara ólögleg og að við megum ekki hafa aðgang að henni,“ segir Halldóra og er þá að vísa í ECS kerfið sem stendur fyrir Endocannabinoid system. 

Kerfið sem um ræðir eru móttak­arar sem taka við kannabínóðunum og eru í öllum aðal líffærum okkar og hafa stjórn á ýmissi starfsemi í manns­líkamanum. Starfsemi á borð við  svefn, lund, matarlyst og meltingu, minni, bólgu­myndun, húðvandamál, endur­heimt og frjósemi. 

Kerfið var uppgötvað af tékkneskum vísinda­manni árið 1992 í Ísrael og við þessa uppgötvun komust vísinda­menn að því að líkaminn fram­leiðir sína eigin kannabínóða í marg­víslegum tilgangi sem kerfið, ECS er hannað til að taka á móti. 

Sigurður bætir svo við að rann­sóknir sýna að líkaminn leitast eftir að halda kannabínóðum eins lengi og hægt er eftir inntöku ólíkt öðrum efnum eins og alkahól og önnur kemísk efni sem líkaminn upplifir sem eitur og reynir að fyrir vikið að losa sig við eitrið á eins skömmum tíma og unnt er.

Fordómar sögunnar

Halldóra talar um fordóma og segir að er maður fer að skoða sögu fíkni­stríðsins þá sé það augljóst að það á klárlega sínar rætur að rekja í rasisma. Það voru sett lög í þeim tilgangi að hafa stjórn á minnihluta­hópum sem stjórn­völdum fannst vera til trafala. Allt á þetta rækjur sínar að rekja til Banda­ríkjanna þar sem þangað komu innflytjendur en það var þá tekið upp á því að banna þau vímuefni sem þessir hópar voru að nota. Þessir fordómar beindust mest að Mexíkóum og má segja að orðið marijuana hafi fengið byr undir vængi í samhengi við samheitið latur Mexíkói. Bann­stefnan smitaðist svo í iðnaðinn og hagsmuna­aðilar í pappírs­iðnaði og bindindis­postular settu af stað hreyfingu sem svo átti eftir að vinda upp á sig gera hampinn ólöglegan. 

Stál­iðnaður, textíl, plast og pappír komu sterkt inn í báráttuna sem sterkir hags­munaraðilar á móti allri hamprækt. Í áratugi hefur hampurinn og hans óendanlegu mögu­leikar einfald­lega legið nánast í dvala sökum áróður­herferðar hins kapítalíska iðnaðar.

Saga hampsins á Íslandi

Sigurður þátta­stjórnandi fer í viðtalinu aðeins yfir sögu hampsins á Ísland sem er í raun mjög áhugaverð er skoðuð. Til eru gögn um að land­námsmenn hafi flutt með sér hampfræ til Íslands og hafa hampfræ fundist í vikningar­gröfum svo eitthvað sé nefnt. Hampur var ræktaður mikið á Íslandi hér á öldum áður og meðal annars við Bessa­staði. Fyrstu skráðu heimildirnar um ræktun hamps var hann Vísi-Gísli sem sendi syni sínum árið 1670 bréf þar sem hann er lýsa tilraunum sínum á ræktun innfluttra plantna og hampur var þar á meðal. Sigurður segir einnig frá Skúla Magnússyni fógeta sem skrifar um hamp­ræktun á átjándu öld sem hafi tekist mjög vel. Árið 1969 gera stjórn­völd bændum ómögulegt að kaupa fræ með þeirri aðferða­fræði að til þess að kaupa fræin þurftir þú að hafa sérstakt leyfi sem svo ekki veitt. Þessi ofbeldis­fulla kúgun og bæling hélst í rúma þrjá áratugi en upp úr 2000 fóru Íslendingar að grúska aftur í hamp­ræktun.

Lögleiðing stendur í stað

Á síðustu árum er margt búið að breytast og í raun sé staðan sú að ræktun á iðnaðar­hampi er lögleg en Ísland er að bíða eftir ákvörðun frá ES varðandi það hvort leyfa megi CBD sem fæðu­bótaefni. Halldóra og Sigurður finnst það báðum skrítið þar sem við séum ekki í Evrópu­sambandinu og gætum búið til okkar eigin löggjöf og staðla í þessum efnum. Ef við horfum til Evrópu sjáum við í málum sem snúa að krabbameins­meðferðum hjá þjóðum eins og Þýska­landi þar sem krabbameins­sjúklingum er ávísað kannabis samhliða hefð­bundnum krabbameins­meðferðum með mjög góðum árangri. Þar að auki er staðan þannig í Þýska­landi að ákvörðun um fulla lögleiðingu hampsins hefur verið tekin og mun sú breyting ganga í gegn á næsta ári sem þykir stórt skref og lýsandi fyrir möguleika Íslands hvað varðar frumkvæði í málum sem snúa að almennri líðheilsu, umhverfis­málum og fram­leiðslu af nátt­úrlegu hráefni í iðnað.

Halldóra sátt við upp­sker­una.

Hallóra fór yfir það hvaða þings­ályktunar­tillögur hafa verið lagðar fram varðandi hampinn en hún hefur lagt fram tvær þings­ályktanir, aðra um lyfjahamp sem var kæfð í fæðingu og svo hina varðandi CBD sem varð til þess að málefni hampsins voru færð frá Heilbrigðis­ráðuneyti yfir í Matvæla­ráðuneyti sem sem lögleiðing CBD stendur föst en Svandís Svavars­dóttir ráðherra hefur tekið afstöðu gegn CBD og því hreyfist málið ekki. 

Ásmundur Friðriksson lagði svo fram þingslályktun varðandi lyfjahamp sem hefur einnig ekki fengið framgang í velferðar­nefnd.

Vill opið samtal við heilbrigðisstarfsfólk

Halldóra segist finna fyrir miklum fordómum og þekkingar­leysi í kringum sig hvað varðar kannabis. Hún segir skort á þekkingu ekki aðeins einkenna ráðherra og aðra alþingis­menn heldur líka virðist hún einnig vera einkennandi meðal heilbrigðis­fólks. Hún segir mikla þörf vera fyrir faglega nálgun lækna­stéttarinnar í málum sem snúa að eigin­leikum kannabis í meðferðum við hinum ýmsu kvillum. Þessi skortur á fagfólki í umræðunni gerir það á verkum að henni finnst baráttan standa svolítið í stað og henni finnst erfitt að standa í rökræðum við heila lækna­stétt sem byggja mál sitt á því að lítið sé búið að rannsaka plöntuna sem Halldóra veit að sé alls ekki rétt þótt svo að hún sé ekki manneskjan sem búi yfir þeirri faglegu þekkingu sem til þarf til þess að rökræða við heilbrigðis­starfsfólk. 

Halldóra óskar eftir heilbrigðis­starfsfólki sem hafa áhuga á að koma að máli við hana og taka opið spjall um gagnsemi kannabis til þess að opna fyrir umræðuna og koma henni á hærra stig. 

Þetta upplýsandi viðtal má sjá á spil­aranum hér fyrir neðan auk þess sem það finnst á öllum helstu streymis­veitum. Þá má einnig benda á að auðvelt er að skrá sig í Hamp­félagið á hampfelagid.is og fá þar reglulegar tilkynningar um það sem er að gerast í hamp­bransanum á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt