Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Óttar segist verða fyrir ellismánun: „Vilja þagga niður í „elliærum gamalmennum““

Óttar Guðmundsson á túni.
Óttar Guð­munds­son á túni. Mynd: Læknablaðið.

Óttar Guðmundsson geðlæknir segir í pistli sem birtist á vefnum Lifðu núna að yfirleitt þegar einhverjum mislíki eitthvað sem hann hafi skrifað þá sé hann kallaður „elliær kall­fauskur“ eða álíka ellismánun. Hann bendir á að ákveðin hræsni felst í því þar sem yfirleitt séu það talsmenn pólitískrar rétt­hugsunar sem geri aldur hans að uppnefni.

Óttar gaf nýverið út bók með pistlum sínum sem birtst hafa víða frá aldamótum. „Umhverfi pistla­höfunda hefur breyst mikið í áranna rás. Lesendur eru mun viðkvæmari en fyrr. Fólk á til að móðgast út í það óendanlega fyrir hönd annarra. Samfélags­umræðan  er full af hættu­legum jarð­sprengju­svæðum. Það úir og grúir af pólitískum varð­hundum á netinu sem gelta hátt ef einhver villist út af réttri braut. Netið viðheldur þannig ákveðinni skoðana­kúgun í nafni rétt­hugsunar,“ segir Óttar.

Hann segist oft hafa fengið hrós en líka reiði­lestur. „Umræðan á Íslandi er því einhæf þar sem ákveðnir valinkunnir álits­gjafar gefa tóninn og kommenta­kerfið endurómar skoðanir þeirra. Fastur pistla­höfundur til margra ára verður að haga seglum eftir vindi. Það hefur þó ekki alltaf tekist og ég hef uppskorið mikinn reiði­lestur netverja vegna ógætilegra ummæla. En stundum hefur mér heppnast ágætlega og fengið mikið hrós í pottum sund­lauganna og frá fisk­salanum mínum,“ segir Óttar.

Þeir sem pistlar sem fjalla um viðmót almennings í garð eldri borgara hafa vakið lukku. „Vinsælustu pistlarnir eru venjulega þeir sem fólk tengir við tilfinninga­lega. Ég skrifaði einu sinni pistil sem kallaðist “Ertu enn?” Hann höfðaði til fjölmargra sem í sífellu fá  spurninguna hvort þeir séu enn að vinna, enn í gamla húsinu eða enn að keyra bíl. Samfélagið gengur útfrá því að gamalt fólk eigi að leggja árar í bát á ákveðnum aldri og bíða dauða síns með golfkylfu í hendi,“ segir Óttar.

Hann bendir á að ellismánun sé svo oft beitt til að þagga niður í fólki. „Umræðan á netinu er mjög hatrömm og fæstir virðast óttast meiðyrða­löggjöfina. Þegar netinu mislíkar eitthvað sem ég hef skrifað er ég venjulega kallaður “elliær kall­fauskur,” “hálfviti” eða “svokallaður geðlæknir.” Það er lærdóms­ríkt fyrir eldri borgara hversu fljótir menn eru að grípa til ellismánunar þegar eldri maður á í hlut. Sömuleiðis er þess krafist að ég hætti að vinna enda eiga “karlæg gamalmenni” að halda sig innan veggja skilgreindra stofnana. Ég hef oft velt því fyrir mér af hverju ummæli sem þessi gagnvart eldri borgurum eru ekki skilgreind sem haturs­orðræða eins og sams konar ummæli gagnvart öðrum samfélags­hópum,“ segir Óttar og að lokum:

„Þeir sem hæst láta á netinu eiga það sammerkt að vilja þagga niður í “elliærum gamalmennum” með öllum ráðum. Þau eigi ekkert erindi inn í þjóðfélags­umræðuna. Það skiptir því miklu máli að láta ekki deigan síga heldur halda áfram að tjá sig og viðra skoðanir sínar þótt þær falli utan ramma hinnar viðurkenndu pólitísku rétt­hugsunar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning