Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Skilur að Ása Berglind vilji ekki mæta í spjallþátt

„Ég skil alveg að fólk nenni ekki ómálefnalega hlutanum“

Ása Berglind Hjálmarsdóttir
Ása Berglind Hjálm­ars­dóttir Er þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Harpa

Björn Leví Gunnarsson, fyrr­verandi þingmaður Pírata, segist skilja vel hvers vegna þingmenn og ráðherrar kunni að hafa takmarkaðan áhuga á að mæta í viðtals­þátt Stefáns Einars Stef­ánssonar en hann hefur á undan­förnum mánuðum stýrt þættinum Spursmál. Tilefnið er umræða um ákvörðun Ásu Berg­lindar Hjálmars­dóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, um að þiggja ekki boð um að mæta í þátt Stefáns og ræddi Björn það á Facebook.

Ása hafði áður sagt í umræðum við Stefán Einar á Facebook að hún hefði ekki áhuga á að mæta í þátt hans. Stefán hefur gagnrýnt þá ákvörðun en Björn Leví fjallar ítarlega um málið í færslu.

Hann segir þingmenn ekki hafa skyldu til að svara fjöl­miðlum og vísar í stjórnar­skrána þar sem segir að alþingis­menn séu eingöngu bundnir við sannfæringu sína. Því skipti að hans mati ekki höfuðmáli hvort þáttur Stefáns sé skilgreindur sem hefð­bundinn fjöl­miðill eða pólitískur málflutnings­vettvangur.

Björn Leví telur líklegra að ástæða þess að stjórn­málamenn vilji síður mæta í þáttinn sé framganga þátta­stjórn­andans.

„Mig grunar frekar að ástæðan sé að þátta­stjórnandi getur verið ansi – mis málefna­lega – ágengur í spurningum sínum. Ég skil alveg að fólk nenni ekki ómálefnalega hlutanum,“ skrifar hann.

Hefur sjálfur átti í deilum við Stefán

Björn Leví rifjar jafnframt upp eigin orða­skipti við Stefán Einar. Stefán hafi þar meðal annars spurt hann hvort hann ætlaði að draga ummæli sín til baka „eða ertu bara aumur lygari?“ Björn Leví segist hafa svarað með því að spyrja hvort verð­samanburður sem deilt var um hefði verið rangur. Að hans sögn hefur þeirri spurningu ekki verið svarað.

Hann segir Stefán spyrja ágengra spurninga sem geti bæði verið góðar og erfiðar, en einnig ósann­gjarnar eða ómálefnalegar. Að hans mati sé erfitt að eiga málefnalegar og uppbyggilegar samræður við Stefán, miðað við eigin reynslu.

Björn Leví líkir viðtals­stílnum við kappræður í Morfís og segir skiljanlegt að stjórn­málamenn vilji ekki taka þátt í slíkum umræðum.

„Afsökunin fyrir því að mæta ekki í viðtal til Stefáns er ekki af því að þátturinn hans er ‘pólitískur málflutnings­vettvangur’ heldur af því að það er skiljanlegt að maður nenni ekki að mæta í morfís kappræður þegar maður vill bara eiga í málefna­legum umræðum um einstaka mál,“ skrifar Björn Leví.

Sjálfur segist hann einu sinni hafa mætt til Stefáns þrátt fyrir að hafa ekki haft sérstakan áhuga á því. Hann hafi þó talið málefna­lega ástæðu til að taka umræðuna og að það samræmdist sannfæringu hans um starf þingmanns.

Fyrrverandi þingmenn tjá sig

Blaða­maðurinn fyrr­verandi Freyr Rögnvaldsson finnst færsla Björn einkennasta af hrútskýringalyk.

„Mér finnst þú fara í miklar bolla­leggingar um umrætt svar Ásu. Það er ekkert óeðlilegt við að hún hafi ekki áhuga á að mæta í eitthvað sem hún upplifir sem pólitískan málflutnings­vettvang, þegar sá vettvangur er dulbúinn sem hefð­bundinn fjöl­miðill,“ skrifar Freyr.

„Mér finnst líka hrút­skýringa­lykt af því að þú sért hér að útskýra hvað þing­maðurinn eigi í raun við, það sé ekki það sem hún hefur látið frá sér fara heldur eitthvað annað. Ertu þá að væna þing­manninn um að segja ósatt, eða að hún geri sér sjálf ekki grein fyrir því hvað hún er að fara með þessum ummælum?“

„Gott hjá henni að sniðganga þessa kvaðningu í yfirheyrslu,“ skrifar Guðundur Andri Thorsson, fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar, í athugasemd við færslu Björns.

„Ef ég væri starfandi þingmaður gæti ég ekki lýst því opinber­lega af full­kominni hreinskilni hvers vegna ég myndi aldrei mæta til hans. Ekki því að það sé eitthvað leyndarmál í sjálfu sér, heldur því að slíkur munn­söfnuður sæmir ekki starfandi þingmanni,“ skrifar Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrum þingmaður Pírata, í athugasemd við færslu Björns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum