Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Jón safnar fyrir Sigurgeir: „Brunasárin þekja því miður stóran hluta líkama hans“

Jón Ármann Gíslason
Jón Ármann Gíslason

Jón Ármann Gíslason, sóknar­prestur og prófastur á Skinna­stað í Öxarfirði, hefur komið á fót söfnun fyrir ungan mann sem er mikið slasaður af völdum  bruna. Pilturinn, Sigurgeir Sankla Ísaksson, er nú á sérhæfðri deild í Svíþjóð ásamt foreldrum sínum. Foreldrar hans, Ísak Sigur­geirsson og Senee Sankla, starf­rækja verslunina Ásbyrgi en þurfa loka næstu vikurnar til að hlúa að Sigur­geiri.

Hér fyrir neðan má lesa pistil Jóns Ármanns og einnig banka­upplýsingar fyrir þá sem vilja leggja þeim lið.

Góðu vinir, nær og fjær !

Nú nýverið gerðist það hörmulega atvik, að ungur piltur, Sigurgeir Sankla Ísaksson, Ásbyrgi, Keldu­hverfi, meiddist mikið af völdum bruna. Hann er mikið slasaður, og  bruna­sárin þekja því miður stóran hluta líkama hans. Þakka má skjót viðbrögð réttra aðila, sem komu drengnum undir læknis­hendur eins fljótt og verða mátti. Sigurgeir var fluttur með sjúkra­flugi til Reykja­víkur og þaðan á sérhæfða deild í Uppsölum í Svíþjóð, þar sem mjög góð þekking, reynsla og tækni er til staðar að meðhöndla sár af þessu tagi.

Foreldrar drengsins, Ísak Sigur­geirsson og Senee Sankla, Noi, fylgdu syni sínum til Svíþjóðar þar sem þau dvelja nú. Bata­horfur eru taldar góðar, en ljóst er að mikið langhlaup er framundan. Fyrir­hugað er að þau dvelji í Svíþjóð í kringum fimm vikur, og eftir það mun  löng endur­hæfing taka við. Þessu fylgir eðlilega gríðar­mikill kostnaður fyrir fjöl­skylduna, sem og tekjutap, en þau hjónin Ísak og Noi starf­rækja Verslunina Ásbyrgi, eins og mörgum er kunnugt. Þeim rekstri, sem þau byggja lífs­afkomu sína á,  geta þau eðlilega ekki sinnt með hefð­bundnum hætti næstu vikur og mánuði. Þess vegna vil ég að höfðu  samráði við vini og velunnara fjöl­skyldunnar minna á styrktar­reikning presta­kallsins. Hann er á kennitölu Skinna­staðar­kirkju. Hvet ég þau sem eru aflögufær að láta eitthvert smáræði af hendi rakna, fjöl­skyldunni til hjálpar á þessum erfiðum tímum í lífi hennar.  Allt sem verður lagt inn á reikninginn næstu vikurnar mun renna óskert til þeirra Ísaks og Noi. Munum að margt smátt gerir eitt stórt.

Umfram allt er það von okkar og bæn, að Sigurgeir megi ná heilsu og kröftum á ný.

Kennitala: 590269-6119

Banki: 0192-26-30411

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning