Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Fólk

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Emil hefur litlar áhyggjur af Vestfirðingum: „Setur strik í reikninginn hjá ferðamönnum“

Vont veður á Flateyri hefur ekki slæm áhrif á stemmingu bæjarins –
Vont veður á Flateyri hefur ekki slæm áhrif á stemm­ingu bæj­ar­ins – Mynd: Emil Ólafur Ragnarsson

Slæmt veður hefur herjað á Vest­firð­inga und­an­farna daga og lýsti Veð­ur­stofa Íslands yfir óvissu­stigi vegna snjó­flóða­hættu á norð­an­verðum Vest­fjörðum. Mannlíf hafði sam­band við Emil Ólaf Ragn­ars­son, íbúa á Flateyri, til spyrja hann um stöð­una í dag.

„Það er tölu­vert af snjó hérna núna, snjó­flóða­hætta hérna á veg­inum eftir strönd­inni að Flateyri, hann er ófær núna sá vegur svo það er von­andi eng­inn að þvæl­ast þar,“ sagði Emil Ólafur í sam­tali við Mannlíf um ástandið. „Skól­arnir eru opnir. Veðrið er þannig séð ekki óbæri­legt, frekar blint og skaf­renn­ingur, en ekk­ert aftakarok. Fólk sem vinnur í öðrum bæjum er bara rólegt heima hjá sér þegar svona er.“

Emil er sjálfur nýfluttur á Flateyri, hvernig er að upp­lifa svona veður?

„Ég er nú öllu vanur, haf­andi búið á Kjal­ar­nesi og í Hval­firði í all­nokkur ár. Þar verður ófært eins og hér. Svo er ég nú að hluta til alinn upp hér í næsta firði svo ég er lítið að kippa mér upp við þetta.“

„Alltaf góð stemn­ing fyrir vestan,“ sagði Emil þegar hann var spurður um hvort þetta hafi slæm áhrif á stemn­ing­una fyrir Vestan. „Pásk­arnir á næsta leiti með Aldrei fór ég suður hátíð­inni og dag­skrá í flestum bæjum hérna. Svo finnst mér nú lík­legt að þeir sem ætli sér á skíði í skíða­vik­unni fagni þess­ari úrkomu bara. Fólk er held ég almennt lítið að láta veðrið hafa áhrif á stemn­ing­una.“

„Það er mis­jafnt býst ég við,“ sagði Emil um áhrif veð­urs­ins á dag­legt líf fólks. „Sumir missa úr vinnu eins og ég. Ég veit til þess að nágrannar mínir komu til lands­ins frá útlöndum í gær og kom­ast ekki heim til sín í augna­blik­inu. Ein­hverjir missa kannski af við­burðum eða öðru sem átti að sækja suður. Annars eru nú flestir for­sjálir þegar kemur að veðri og fara þá af stað fyrr ef spáin er slæm. Þetta kannski setur strik í reikn­ing­inn hjá ferða­mönnum sem eru ekki vanir íslensku veðri, en von­andi er fólk vel upp­lýst.“

Flateyri –
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Tvö alvar­leg umferð­ar­slys á sama veg­ar­kafla á Tenerife

Aðeins átta mínútur liðu milli slysanna.
Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

Landið

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.
Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Landið

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Landið

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp