Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Óánægður fíkniefnakaupandi mætti á lögreglustöð og óskaði eftir efnagreiningu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu Mynd: Lára Garðarsdóttir

Nokkuð var um umferðar­lagabrot og fíkniefnamál hjá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu í dag. Meðal annars kom einstaklingur sjálfur á lögreglustöð og óskaði eftir að fíkniefni yrðu efna­greind þar sem hann óttaðist að honum hefðu verið seld léleg fíkniefni.

Heim­sóknin til lögreglu hafði þó aðrar afleiðingar en viðkomandi kann að hafa gert ráð fyrir. Hann var kærður vegna gruns um vörslu og meðferð fíkniefna.

Tveir ökumenn voru jafnframt hand­teknir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra reyndist sviptur ökuréttindum en hinn var ekki með gild ökuréttindi. Báðir voru látnir lausir að lokinni blóð­sýnatöku.

Þá stöðvaði lögregla ökumann fyrir notkun farsíma við akstur og kom í ljós að hann var ekki með gild ökuréttindi. Annar ökumaður var einnig kærður fyrir farsíma­notkun undir stýri.

Ökumaður sem blés undir refsimörkum vegna ölvunar­aksturs var látinn hætta akstri. Þá var ökumaður kærður fyrir of hraðan akstur auk þess sem afturljós bifreiðarinnar voru ekki tendruð. Annar var kærður fyrir að vera með filmur í fremri hliðar­rúðum bifreiðar.

Í miðborg Reykja­víkur var tilkynnt um ölvaðan mann sem hafði dottið á vinnu­svæði. Lögregla ræddi við manninn á vettvangi.

Einnig var tilkynnt um umferðar­óhapp tveggja bifreiða en ekki var talið að slys hefðu orðið á fólki. Þá barst tilkynning um olíu á vegi. Slökkvilið höfuð­borgar­svæðisins hreinsaði olíuna upp og lögregla sinnti umferðar­stjórn á meðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum