Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Björn Ingi dæmdur fyrir hrottalega nauðgun

Dómurinn taldi sannað að hann hefði meðal annars tekið konuna kverka­taki

Akureyri
Akureyri Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Wikipedia/Skapti Hallgrímsson

Björn Ingi Helgason hefur verið dæmdur í tveggja ára og sex mánaða fangelsi í Héraðs­dómi Norður­lands eystra fyrir nauðgun á konu á Akureyri í apríl 2024. Honum var jafnframt gert að greiða konunni tvær milljónir króna í miska­bætur og rúmar fjórar milljónir í sakar­kostnað.

Samkvæmt ákæru höfðu Björn Ingi og konan verið í samskiptum áður en þau hittust að kvöldi 13. apríl 2024. Þau fóru saman í partí og síðar á bar áður en þau héldu heim til konunnar. Fyrir lá að kynferðisleg samskipti þeirra fyrr um kvöldið höfðu verið með samþykki beggja.

Konan lýsti því hins vegar að eftir heim­komuna hefði Björn Ingi orðið harka­legur og haldið kynferðis­legum athöfnum áfram þrátt fyrir að hún hefði ítrekað beðið hann að hætta. Dómurinn taldi sannað að hann hefði meðal annars tekið hana kverka­taki, slegið hana í andlitið, rifið í hár hennar og beitt hana öðru ofbeldi við kynferðis­mökin.

Björn Ingi neitaði sök en kvaðst lítið sem ekkert muna eftir atvikum á heimili konunnar vegna mikillar ölvunar. Dómurinn taldi framburð brotaþola hins vegar trúverðugan og stöðugan í megin­atriðum. Hann hefði jafnframt fengið stoð í læknis­fræðilegum gögnum, upptökum lögreglu og framburði vitna.

Brotaþoli hlaut líkamlega áverka og glímdi í kjölfarið við alvarlega áfalla­streitu­röskun. Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til alvarlegra áhrifa brotsins á andlega heilsu hennar.

Björn Ingi var því dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi, til greiðslu tveggja milljóna króna í miska­bætur og 4.008.688 króna í sakar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning