Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Meint fórnarlömb Dr. Skúla orðin 14 talsins – Málin rannsökuð sem manndráp

Skúli Tómas Gunnlaugsson.
Skúli Tómas Gunn­laugs­son.

Meint fórnar­lömb mistaka Dr. Skúla Tómasar Gunnlaugs­sonar eru nú orðin 14 talsins en þar af létust níu.

Vísir greindi frá því fyrir stundu að nú snúi rannsókn Lögreglunnar á Suðurnesjum á mistökum í starfi yfir­læknis við Heilbrigðis­stofnunar Suðurnesja að andláti níu sjúklinga en ekki sex líkt og kom fram áður en Mannlíf fjallaði ítarlega um málið fyrir áramót. Andlát sjúklinga Dr. Skúla urðu á árunum 2018 til 2020 en mál fimm sjúklinga til viðbótar eru til rann­sóknar en höfðu þeir verið settir á lífsloka­meðferð að ástæðu­lausu, áðu en þeir voru fluttir á hjúkrunar­heimili og þannig meðferð hætt.

Sjá einnig: Lögreglan rannsakar sex andlát tengd Dr. Skúla – „Boltinn er núna hjá mats­mönnunum“

Dr. Skúli óskaði eftir því að fá aðgang að öllum rann­sóknar­gögnum málsins fyrir Lands­rétti sem úrskurðaði nýlega að hann fengi aðgang að hluta þeirra gagna sem hann óskaði eftir.

Segir Lögreglan á Suðurnesjum að rannsókn á málum 8 sjúklinga af fjórtán séu á frumstigi en grunur leikur á að Dr. Skúli sé ábyrgur fyrir rangri greiningu og meðferð sömu sjúklinga. Hafi hann þar með gerst sekur um manndráp ásamt fleiri hegningar og sérrefsilaga­brota.

Í nóvember síðastliðnum veitti Alma Möller land­læknir, Dr. Skúla áfram­haldandi starfs­leyfi á Land­spítalanum þar sem hann hefur starfað undan­farið. Það gerði hún þrátt fyrir að hafa skrifað álit á málinu þar sem Dr. Skúli fær vægast sagt slæma útreið.

Sjá einnig: Álit land­læknis á máli Skúla læknis: „Ómeðhöndlaðar sýkingar kunni að hafa verið aðal dánar­orsök“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið