Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sjálfstæðismaður um Björgu Fenger og Garðabæ: „Þetta getur ekki haldið svona áfram“

Ólga og spenna ríkir í Garðabæ – bláasta og mögulega ríkasta sveitar­félagi Íslands; þar sem Sjálfstæðis­flokkurinn hefur setið einn að kjöt­kötlunum frá því að elstu menn og konur muna; og mun lengur en það.

Nú eru blikur á lofti

Segja má að þetta kjör­tímabil hafi breyst í hálfgerða martröð fyrir meirihlutann þaulsetna í Garðabæ; öflug stjórnar­andstaða hefur í fyrsta skipti í sögu Garða­bæjar­stjórnmála verið rekin með áberandi hætti á þessu kjör­tímabili; þar er á engan hallað þegar nafn Söru Daggar Svan­hildar­dóttur er nefnt, sem verið hefur bæjar­fulltrúi á vegum Garða­bæjar­listans; og látið í sér heyra.

Hún fer nú fyrir Viðreisn sem sagði sig úr Garða­bæjar­listanum og býður flokkurinn nú sig fram einn og Sara Dögg er þar fremst í fylkingu.

Hvað hefur að mati Söru Daggar einkennt stjórn­málin í Garðabæ þetta kjör­tímabilið, og hvernig sér hún fyrir sér fram­tíðina í stjórn­málum Garða­bæjar ef flokkur hennar nær að komast í meirihluta­stjórn að kosningum afloknum?

„Það sem hefur einkennt þetta kjör­tímabil er fyrst og fremst aðgerða­leysi sjálfstæðis­manna. Þau sofnuðu á verðinum og klúðruðu uppbyggingu samhliða hraðri fjölgun íbúa. Tækifæri sem hefði ef vel hefði verið haldið á málum getað styrkt stöðu Sjálfstæðis­flokksins ennfrekar en í staðinn hefur aðgerða­leysi þeirra veikt stöðu þeirra verulega. Óánægja nýrra íbúa stendur þar hæst og er varla gott veganesti inn í kosninga­baráttu Sjálfstæðis­flokksins sem setið hefur við völd í yfir 45 ár og er í raun ekkert annað en birtingar­mynd þeirra valda­þreytu sem ríkir. Við í Viðreins finnum fyrir miklum meðbyr og hlökkum til að takast á við verkefnin framundan með okkur blása ferskir vindar sem munu leiða til ákveðinnar uppfærslu ýmissa þátta er varða daglegt líf Garðbæinga. Við ætlum að fara betur með skattfé og hækka þjónustu­stig sveitar­félagsins við alla íbúa og láta Garðabæ taka aftur forystu í skóla­málum.“ 

Skjálfti í Sjálfstæðismönnum

Samkvæmt heimildum Mannlífs innan úr stjórn­kerfi Garða­bæjar er skjálfti í Sjálfstæðis­mönnum; þeir segja:

„Falli Garðabær er eitt helsta vígi flokksins í áratugi orðið rústirnar einar. Og þá er orðið fátt um fína drætti hjá flokki sem farið hefur með völdin að mestu á Íslandi í fleiri fleiri áratugi.“

Eða eins og annar heimildar­maður Mannlífs innan úr Sjálfstæðis­flokknum sagði við blaðamann Mannlífs:

„Þetta gæti verið búið spil. Gunnar bæjar­stjóri (Einarsson) er að hætta; sumir segja hann flýja sökkvandi skip – en aðrir segja tíma hans einfald­lega liðinn. En eitt er víst; hneykslið varðandi Milljarðarhöllina svokölluðu vakti og vekur enn mikla reiði – þar var bruðlað með skattfé almennings og ekki einu sinni byggt almennilegt og löglegt knattspyrnuhús; algjör peninga­sóun og bruðl. Svo er það hún Björg Fenger, forseti bæjar­stjórnar – úff! Hvað voru Gunnar bæjar­stjóri og Björg að hugsa? Hún fékk samning við fyrirtæki sitt án lögform­legs útboðs – spilling í hæsta gæða­flokki. Og ég er orðinn leiður á því að fá yfir mig skammir og skít vegna Bjargar; hún hefði átt að hætta núna og ekki bjóða sig fram í annað sætið; þetta getur ekki haldið svona áfram.“

Mannlíf fór á stúfana í Garðabæ og ræddi við fólk á förnum vegi: Skiptingin var þessi; helmingur bæjarbúa sem Mannlíf ræddi við vilja Sjálfstæðis­flokkinn burt úr því að ráða öllu og vilja nýjungar. Aðrir sáu ekkert annað en áfram­haldandi meirihluta Sjálfstæðis­flokks í bænum bláa.

Sjáum hvað setur, en ljóst er að Sjálfstæðis­menn geta ekki gengið að neinu vísu eftir þetta kjör­tímabil sem nú er að ljúka; staðan er breytt og sumt fólk er þreytt.

Ógnin óhugsandi, að Sjálfstæðis­menn missi meirihlutann í Garðabæ er líklegri nú en nokkru sinni fyrr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur