Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bryndís er nýtin og hendir ekki mat. „Hef átt rjóma sem er komin mánuð frá síðasta söludegi“

Bryndís og Alda Líf
Bryndís og Alda Líf

Neytandi vikunnar heitir Bryndís Guðmunds­dóttir er 44 ára gift og fimm barna móðir. Börnin eru á aldrinum 19,17,15,7 og 4 ára.  Fjöl­skyldan býr í Grundar­firði á Snæfellsnesi.  Bryndís starfar í Grunn­skóla Grundar­fjarðar sem stuðnings­fulltrúi og skólaliði. Hún er sveita­stelpa sem ólst upp á Munaðarnesi á Ströndum. Áhugamál hennar eru crossfit, safnar potta­blómum og hefur gaman af að rækta grænmeti í garðinum. Fjöl­skyldan horfir mikið saman á kvik­myndir.  Börnin hafa fengið gott kvikmynda­uppeldi fyrir gömlum og klassíkum bíómyndum.  Fjöl­skyldan fer svo saman í bíó þegar farið er í höfuð­borgina.

Hvernig sparar þú í matar­innkaupum?

Það er ekki lágvöruverslun í mínu bæjar­félagi. Hér er  Kjörbúðin.  En það er margt hægt að gera til að lækka kostnaðinn við matar­innkaup. Til dæmis nýti ég mjög mikið  að kaupa matvörur þegar þær eru komnar á afslátt vegna dagsetningar. Það er mikill sparnaður.  Og ekki er verra að þá er þeim mat ekki hent.  Það er ótrúlegt hvað sumar matvörur endast lengi eftir söludag. Hef átt rjóma sem er komin mánuð frá síðasta söludegi og það er í fínu lagi. Og skyr geymist jafnvel í marga mánuði.  En nýti svo allar ferðir til að fara í Bónus þegar maður á ferð þar sem Bónus er.  Bónus er í næsta bæjar­félagi og gerir maður sér stundum ferð þangað, en það hefur minnkað  þar sem bensínið er dýrt.  Svo ræktum við okkur gulrætur sem duga nánast allt árið. Ræktum líka kartöflur, grænkál og höfum verið að prófa okkur áfram í grænmetis­ræktun.  Reyni líka að baka fyrir krakkana bakkelsi til að taka í nesti í skólann og fleira í þeim dúr í staðinn fyrir að kaupa tilbúið.  Elda líka frá grunni til dæmis súpur og þessháttar.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já hér flokkum við allt rusl. Og við erum mjög dugleg að flokka.  Ég endurnýti  líka vel föt. Hendi nánast engu og hef getað notað fötin af börnunum aftur og aftur.  Stór fjöl­skyldan býr líka hér í Grundar­firði og við erum dugleg að láta fötin fara á milli barna.  Einnig eru öll okkar húsgögn í stofu og eldhúsi, keypt notuð eða fengið gefins. Geymi poka undan brauði og slíku og nota undir afganga og ýmislegt sem þarf að nota. Og í garðinum höfum notað vöru­bretti til að smíða matjurta­kassa og kofa fyrir börnin.   Held líka að endur­nýtnin komi frá mínum uppeldi í sveitinni. Þar var allt nýtt og engu hent. Ráð mitt er að henda ekki mat þó að hann sé komin á síðasta söludag. Láttu bragð og lyktar­skyn skera úr hvort maturinn sé í lagi.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég reyni að nýta vel tilboð. Kaupi mat eins og ég sagði á 50 prósent afslætti þegar hann er komin á dagsetningu og þegar tilboð koma. Og reyni að kaupa bara föt þegar þau koma á tilboði og jafnvel gjafir.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Við leyfum okkur ekki mikin óþarfa.  Það er bara ekki svigrúm til þess á stóru heimili.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já mjög miklu. Á heimilinu er allt flokkað.  Matar­afgangar fara í lífrænt sem verður svo að moltu. Og reyni að nýta hlutina sem lengst og kaupi ekki óþarfa.

Annað sem þú vilt taka fram?

Það er mjög sniðugt að láta unglingana sína sem hafa verið í vinnu og eiga pening að kaupa stundum í kvöld­matinn. Við höfum gert það stundum og þau læra helling af því og sjá hvað það kostar að kaupa inn mat og hvað þarf að hafa í huga.  Þau eru stundum mjög hissa yfir því hvað hlutinir kosta mikið og hvað það kostar að halda út heimili.

Að lokum deilir Bryndís með okkur þessari dýrindis uppskrift frá mömmu sinni. En hún er ein af bestu skúffu­kökum í heimi.  Hér er hún étin upp til agna á engri stund. Þægileg uppskrift sem ekki mikil fyrirhöfn að gera.

300 gr sykur
300 gr hveiti
3 egg
150 gr brætt smjörlíki
6 msk kakó
2 tsk lyftiduft
1 tsk natrón
3 dl mjólk, smá salt

Allt hrært saman í 5 mín. bakist við 200 gr í 25 min.

Krem:  1 pk flórsykur, 3 msk kakó, 150 gr brætt smjörlíki, smá kaffi, vanillu­dropar og smá heitt vatn til að fá rétta áferð á kremið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning