Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf

Við rannsókn málsins fann lögregla myndefni í síma mannsins

Héraðsdómur Norðurlands eystra er á Akureyri
Hér­aðs­dómur Norð­ur­lands eystra er á Akureyri Mynd: Wikipedia/Skapti Hallgrímsson

Lands­réttur staðfesti í síðustu viku úrskurð Héraðs­dóms Norður­lands eystra um að karlmaður sæti gæslu­varðhaldi til 9. október. Maðurinn er grunaður um ítrekuð kynferðis­brot og alvarlegt ofbeldi gegn sambýlis­konu sinni um margra ára skeið.

Málið kom upp undir lok ágúst þegar lögregla kom á heimili parsins. Konan lýsti þá lang­varandi líkamlegu og kynferðis­legu ofbeldi, auk stjórnunar og kúgunar. Sagði hún manninn meðal annars hafa tekið sig ítrekað hálstaki, stungið sig í bakið og neytt sig til kynlífs.

Við rannsókn málsins fann lögregla myndefni í síma mannsins þar sem hann virtist hafa samfarir við konuna meðan hún svaf. Konan kvaðst ekki hafa vitað af upptökunum.

Maðurinn hefur játað hluta brotanna en segir þau færri en konan lýsir. Þá liggur fyrir að hann hafi hótað sjálfs­vígi og lífláti konunnar og barna þeirra.

Lögmaður mannsins krafðist þess að gæslu­varðhaldinu yrði aflétt eða honum komið fyrir á viðeigandi heilbrigðis­stofnun. Lands­réttur hafnaði kröfunni og staðfesti úrskurðinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning