Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Katrín og Bjarni ósammála um viðskipti stórútgerða

Katrín Jakobs­dóttir, forsætis­ráðherra, segist hafa áhyggjur af því að samþjöppun í sjávar­útvegi verði of mikil eftir kaup Síldar­vinnslunnar á útgerðinni Vísi í Grindavík. Þetta kemur fram á RÚV.

Katrín segir meðal annars að Samkeppnis­eftirlitið og Fiskistofa séu með það til skoðunar hvort afla­heimildir fari yfir kvóta­þakið eftir kaupin. Hún segist hafa þá skoðun að endur­skoða verði reglu­verkið, bæði varðandi kvótaþak og tengda eigendur.

„Það er búið að vera töluverð umræða um það á undan­förnum misserum að það þurfi að skerpa mjög á þeim reglum,“ segir Katrín í samtali við RÚV.

Hún segist einnig hafa áhyggjur af áhrifum á byggðar­lögin í landinu. „Við erum auðvitað með sögu þar sem við höfum oft séð að hagræðing hefur ráðið för en ekki sjónarmið um samfélags­lega ábyrgð eða byggða­festu. Þannig að ég hef líka áhyggjur af því.“

Katrín kveðst einnig hafa áhyggjur af tilflutningi auðs sem eigi sér stað í kringum viðskipti á þessu tagi. Það megi setja í samhengi við laga­ákvæði þar sem segir að auðlindin sé sameign þjóðarinnar.

„Þá aftur vakna spurningar um gjaldtöku, þegar svona viðskipti eiga sér stað,“ segir hún og bætir við að um sé að ræða eitt þeirra atriða sem til skoðunar séu hjá matvæla­ráðherra, Svandísi Svavars­dóttur.

Segir marga ala á sundrungu

Frétta­blaðið ræddi við Bjarna Benediktsson, fjármála­ráðherra, að loknum ríkis­stjórnar­fundi í morgun. Hann sagði enga ástæðu til annars en að ætla að áfram yrði vel rekin og umfangs­mikil fram­leiðsla í Grindavík. Hann sér ekki ástæðu til þess að hafa áhyggjur af kaupum og sölu Vísis.

Bjarni sagði marga ala á sundrungu vegna fiskveiði­kerfisins, þegar blaða­maður Frétta­blaðsins spurði hann hvort viðskiptin kæmu til með að auka sundrungu um kerfið, sem hafi verið umdeilt fyrir.

Mál Guðbjargarinnar og Hrannar hf. á Ísafirði hefur verið rifjað upp í tengslum við kaup Síldar­vinnslunnar á Vísi, en félög í eigu Samherja eiga stóran hlut í Síldar­vinnslunni. Þegar útgerðin á Ísafirði var keypt voru svipuð loforð á lofti líkt og nú eru í Grindavík, um að starfsemin yrði áfram í heima­byggð. Það gekk hins vegar ekki eftir og Ísfirðingar sátu eftir með sárt ennið.

Lesa má um það mál í baksýnis­spegli hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Ísraelsher segir þá hafa verið liðsmenn Hamas.
Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Parið var í hávaðarifildi að sögn lögreglu

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað