Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Regína Ásvaldsdóttir, nýráðinn bæjarstjóri í Mosfellsbæ: Vil frekar horfa fram á veginn en til baka

REgína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar
REgína Ásvalds­dóttir bæj­ar­stjóri Mos­fells­bæjar Mynd: Birgir Ísleifur Gunnarsson

„Ég mun leggja áherslu á að vinna vel með nýkjörnum bæjar­fulltrúum og því góða starfs­fólki sem vinnur í Mosfellsbæ. Þjónusta við bæjarbúa er mikil­vægasta verkefnið að mínu mati, samskipti og ekki síst samráð við hagsmuna­aðila í einstaka mála­flokkum. Mosfellsbær hefur orð á sér fyrir að vera mjög fjölskyldu­vænn bær og það er mikilvægt að þær áherslur haldi sér. Það geta komið miklir vaxtar­verkir samfara stækkun bæjarins og er að mörgu að huga í því sambandi,“ segir Regína Ásvalds­dóttir sem hefur verið ráðin bæjar­stjóri Mosfells­bæjar og er áætlað að hún taki við í byrjun september.

Regína var um árabil bæjar­stjóri Akra­neskaupstaðar en hefur undan­farin ár verið sviðs­stjóri velferðar­sviðs Reykja­víkurborgar.

Mynd frá bæj­ar­stjóra­tím­anum á Akranesi. Með Höllu Bergþóru Björns­dóttur, þáver­andi sýslu­manni og núver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, við vígslu á Akra­torgi 17. júní 2014.

„Eitt af stærri verk­efnunum mínum á Akranesi tengdist sements­reitnum en það þurfti að semja um eignar­hald á reitnum við bæði banka og fyrirtæki til að hefja skipulags­vinnu og niðurrif á mann­virkjum. Önnur verkefni tengdust stefnu­mótun í atvinnu­málum, uppbyggingu gamla miðbæjarins, skipulag á Breiðinni, sem er vitasvæði á Akranesi, og einnig Guðlaugu sem er heit laug á Langa­sandi og mjög vinsæl. Ég var svo heppin að starfa með flottum einstaklingum í bæjar­stjórn og það var yfirleitt gott samstarf á milli meiri- og minni­hluta sem skiptir miklu máli.

Covid hafði mikil áhrif á vel­ferð­ar­svið.

Á velferðar­sviði hefur verið mikil uppbygging á síðustu árum, meðal annars í búsetu fyrir fatlað fólk og einnig fyrir heimilis­laust fólk. Ég tók þátt í mjög öflugri stefnu­mótun á sviði þjónustu­mála en sviðið er á fleygi­ferð inn í nútímann með stafrænni umbreytingu og hefur verið í forystu þar um hjá borginni. Covid hafði mikil áhrif á velferðar­svið en við erum að reka um 116 starfs­einingar og þar af eru um 70 sólarhrings­stofnanir sem þurftu að vera starfandi allan tímann þrátt fyrir veikindi starfs­manna. Það tókst að sinna íbúum og verja þá að miklu leyti fyrir smitum vegna útsjónarsemi og metnaði hjá stjórn­endum og starfs­mönnum sviðsins sem lögðu ómælda vinnu á sig til að allt gengi upp. Mér finnst ég aldrei geta full­þakkað þessum hvunndagshetjum nógsam­lega fyrir þrek­virkið. Ég þrífst í krefjandi og skemmtilegum verkefnum og ég vil frekar horfa fram á veginn en til baka.“

Frá und­ir­ritun samn­ings um geð­heilsuteymi í Reykja­vík með Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra, Svandísi Svav­ars­dóttur, þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, og Óskari Reyk­dals­syni.

Mikilvægt að grípa strax inn í

Regína er gift Birgi Pálssyni, tölvunar­fræðingi og deildar­stjóra hjá Íslenskri erfða­greiningu. „Ég á tvær dætur af fyrra hjóna­bandi, Ernu Maríu og Ýr, og Birgir á eina dóttur, Auði Kolbrá. Við höfum verið gift í 20 ár og elskum að ferðast og spila golf og gera alls konar skemmtilega hluti. Ég fæ líka mikla næringu úr því að ganga á fjöll og var að koma úr frábærri ferð til Cornwall á Suðvestur Englandi með systrum mínum, eldri dóttur minni og systur­dætrum í dásamlegu umhverfi og góðu veðri.“

Hjónin Regína og Birgir Pálsson.
Því miður hefur þró­unin verið í þessa átt hér á landi.

Regína er spurð um lífs­reynslu sem hefur mótað hana. „Það er mjög margt sem mótar mann í gegnum lífs­leiðina en ekkert eitt sem stendur upp úr. Ég lærði snemma að vinna og bjarga mér sjálf og er af þessari kynslóð sem setur vinnuna svolítið í forgang í lífinu. Í velferðar­málunum þarftu oft að horfast í augu við einstaklinga sem eru á sínum versta stað í lífinu og þurfa að reiða sig á kerfið. Mér finnst mjög mikilvægt að bregðast ekki því trausti sem og að vera til staðar og aðstoða við að finna lausnir. Ég hef verið í mörgum krefjandi störfum í gegnum tíðina en það er ennþá ekkert sem jafnast á við fyrsta árið mitt sem félags­ráðgjafi á barna­verndar­skrifstofu Oslóar­borgar. Það var mikil neysla á hörðum efnum í gangi á þessum árum og hrikalega erfiðar aðstæður sem sum börn komu úr. Því miður hefur þróunin verið í þessa átt hér á landi og gríðar­lega mikilvægt að grípa strax inn í þessi mál og reyna að aðstoða börnin og fjöl­skyldurnar. Ég hugsa oft um hvað það eru mikil forréttindi að vera heil­brigður og hafa tækifæri til náms og starfa og við sem samfélag megum aldrei gleyma þeim sem þurfa stuðning í sínu daglega lífi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Ísraelsher segir þá hafa verið liðsmenn Hamas.
Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Parið var í hávaðarifildi að sögn lögreglu

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað