Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Kjartan er sérfræðingur í rafmyntum: „Rafmyntir eru líklega gjaldmiðill framtíðarinnar.“

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars Dan og Davíðs Karls Wiium í Þvotta­húsinu er enginn annar en Kjartan Ragnars, Cryptosérfræðingur og lögmaður. Hann er einn af stofn­endum og eigendum rafmynta viðskipta­hallarinnar Myntkaup. Myntkaup fór í loftið í maí 2020 er eini íslenski vettvangurinn þar sem hægt er að eiga viðskipti með rafmyntir.

Kjartan Ragnars

Kjartan leiddi okkur á hinn framandi og að mörgum finnst flókna heim rafmynta og þá helst heim rafmyntarinnar Bitcoin. „Rafmyntir eru líklega gjald­miðill fram­tíðarinnar,“ sagði Kjartan við þá bræður.

Þegar bræðurnir spyrja Kjartan hvað rafmyntir eða Bitcoin sé þá rekur hann mannkyns­söguna og þá fjölmörgu gjald­miðla sem við lýði hafa verið. Hvernig þeir hafa risið og fallið og hvernig það kerfi sem við þekkjum í dag er líklegt til þess að líða undir lok.

Peningar leystu gullið af

Hann talar um ójöfnuð og hvernig ríkasta 0.1% á auðvelt með að sölsa undir sig verðmætum og verða enn ríkari sem leiðir til enn meiri ójöfnuðar. Ójafn leikur verður að teljast. Ríki heimsins takast á við stríðs­brölt og halla­rekstur með því að prenta meiri pening og geta þar með haldið áfram hinu daglega lífi, eitthvað sem ekki væri hægt eða illmögulegt með Bitcoin enda eru takmörk á því hversu mörgum Bitcoin verður grafið eftir eða 21.milljón Bitcoin. Hann tekur sem dæmi Rómaveldi þar sem helsti gjald­miðillinn var gull en stríðs­brölt og aukning opinbera starfa kallaði á þægilegri og aðgengilegri gjald­miðil og þá leysti peningur gullið af hólmi. Ef hann skorti voru fleiri myntir slegnar.Máli sínu til stuðnings fræddi Kjartan Davíð og Gunnar um það hvernig Afríka til forna notaði skeljar sem gjald­miðil en erfitt var fyrir þá að vinna og sækja slíkt og því góður gjald­miðill. Þegar Evrópu­búar komust að þessu þá sölsuðu þeir undir sig verðmætum þar með einföldum hætti enda aðgengi þeirra að þessum efnivið einfaldur. Arðrændu þá. Fleiri slík dæmi voru rædd í þættinum. Góður gjald­miðill á heima­velli en í alþjóð­legum viðskiptum ekki alveg.

Með rafmyntum er leikurinn jafnaður.

Verðbólga og óðaverðbólga er meðal þess sem bar á góma í þessu samhengi þar sem þjóðir hafa farið offorsi í peninga­prentun með hræðilegum afleiðingum.

Aðspurður um samanburð Bitcoin við aðrar rafmyntir vill hann meina að það séu margt áhugavert og fram­bærilegt en þó séu aðrar rafmyntir af öðru meiði en Bitcoin og séu að reyna ná yfir fleiri anga t.d. Nft og þar fram eftir götunum. Bitcoin er í raun einfalt kerfi og fullkomið sem slíkt og fyrir það sem það á að gera. Þegar Kjartan er spurður hvernig sé hægt að umbreyta Bitcoin í pening þá segir Kjartan það einfalt. Þú einfald­lega leggur Bitcoinin þín t.d. inn á Myntkaup og ýtir á selja. Þar með umbreytir þú Bitcoininu þínu í pening. „Munurinn á hlutabréfa­markaðinum og rafmynta­markaðinum er að hann er opin 24/7,” sagði Kjartan og bætti við, „og gríðarleg velta þar á.” Gunnar spyr Kjartan hvort hann vilji kannast við að Bitcoin sé jafn óumhverfisvænn gjald­miðill og sagt hefur verið en því er haldið fram að ein Bitcoin færsla jafngildi tveimur milljónum debetkorta­færsla. Kjartan neitar þessu ekki en kemur með góð rök hvers vegna Bitcoin er ekki óumhverfisvænni kostur en hagkerfið eins og við þekkjum það í dag er.

„Bitcoin kerfið er gríðar­lega gagnsætt, færslunar sem slíkar taka jú mun meiri orku en utan­umhaldið og kerfið í kringum Bitcoin er mun minna og einfaldara en í hinum hefð­bundna hagkerfi. Áhugaverð og mikilvæg umræða að taka.“

Stór batterí eins og lífeyris­sjóðir á Íslandi hafa ekki verið að fjárfesta í Bitcoin en Kjartan veit til þess að til dæmis hafi lífeyris­sjóður í Ísrael fjárfest í Bitcoin fyrir 100 milljónir dollara. Það er til marks um að peninga­elítan og maskínan er byrjuð að viðurkenna Bitcoin og hvaða tækifæri í því felast.Aðspurður segist hann setja svo til öll egg sín í sömu körfuna og fjárfesta í Bitcoin og að litlu leiti öðrum rafmyntum. Hann vilji „put your money where your mouth is,“ eins og hann orðað það á lélegri íslensku (en fínni ensku).

Gunnar spyr Kjartan hvort Bitcoin sé komið að handan og hafi jafnvel verið búið til af geimverum eða úr fram­tíðinni en Kjartan segist ekki trúa því en kannast við umræðuna. Staðreyndin er sú að höfundur Bitcoin er óþekktur en margar getgátur og samsæri eru á kreiki um hver eða hverjir séu á bakvið þetta fyrirbæri. Hér fyrir neðan má sjá viðtalið í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Ofurkrúttleg íbúð í Þingholtunum komin á sölu
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt