Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Hótel Kjarnalundur -falin perla á Akureyri

Huggulegt á Hótel Kjarnalundi
Huggu­legt á Hótel Kjarna­lundi

Á köldu sumar­kvöldi runnu tveir þreyttir ferða­langar; ljós­myndari og blaða­maður, í hlað Hótel Kjarna­lundar. Tekið var á móti okkur af einskærri hlýju, en fyrir innan sat Guddi með bros á vör og fræddi hann okkur um sögu byggingarinnar. Hótelið rekur hann ásamt systur sinni, Hildi og föður þeirra, Magnúsi.

Góð hvíld í góðu rúmi

Eftir klukku­tíma spjall og gott kaffi var okkur vísað til herbergjanna sem eru notaleg og hljóðlát, með rúmgóðu baðherbergi. Við vorum afar þreytt og lögðumst til hvílu og þá gerðist það. Ég svaf yfir mig! Ég snúsaði vekjara­klukkuna þangað til að ég þurfti að þeytast af stað til að fara í tökur á þættinum um Akureyri. Með úfið hár mætti ég í morgun­matinn sem var dásam­legur og kaffið góða.

Við lögðum svo í hann í tökur sem stóðu yfir í 16 tíma. Eftir þær fórum við á hótelið, sem við vorum farin að kalla heima, því það var svo notalegt. Um leið og við erum komin inn mætir okkur hún Hildur með sinn dillandi hlátur og frábæra skopskyn og býður okkur á rúntinn á Fordinum sínum sem er frá 1975. Inn var hoppað og það var eins og að stíga til fortíðar með örlítilli bensín­lykt, en innsogið var fært fram og til baka til að halda bílnum í gangi.

Notalegt að stinga sér í pott­inn á hót­el­inu

Hún sýnir okkur einn af bústöðunum sem pabbi þeirra byggði með þeim. Hann minnti helst á höll alveg við Kjarna­skóg. Úti voru kanínur að sniglast og hestar við girðinguna og það eina sem ég gat hugsað var: Ef ég væri barn þá ætti ég milljón leyni­staði og bú allt í kringum bústaðinn.

Svo kom ákvörðunin! Hér skyldi ég gista með litla kútinn minn og manninn og farið skyldi í öll þessi ævintýri sem ég sá fyrir mér og nesti borðað á teppi í rjóðri sem bara við vissum af.

Fallegir munir til sölu á Hótel Kjarna­lundi

Þetta er allt gert af fjöl­skyldunni, fyrir fjöl­skyldur og stað­setningin virkar hvort heldur fyrir rómantík eða fjöl­skylduferð. Það eru pottar með rjóðri allt um kring og sána með innrauðu ljósi en fyrir framan hana er leikja­tölva, svo barninu leiðist ekki meðan foreldrarnir detoxa sig.

Þegar ég hitti fjölskyldu­föðurinn hann Magnús þá skyldi ég af hverju þetta er svona hjá þeim, hann er bara einn stór pabbi og stoltið skín í gegnum stríðnina.

Hann er týpan sem gerir hlutina með börnum sínum frekar en fyrir þau, svo að draumar þeirra þeirra geti ræst!

Hann byggði sinn rekstur með sínum föður og það var það sama uppi á pall­borðinu þar; allt byggt upp saman.

Það er ást í öllu sem þú sérð á hótelinu og bústöðunum. Upplifunin á að vera „heima“ fyrir þann sem gistir hjá þeim. Hver einasti hlutur á sér stað og sögu; peninga­skápur úr norska sendi­ráðinu, tré frá afa af trésmíða­verkstæðinu, útsaumur frá ömmu, hand­gerðir hlutir frá starfs­fólkinu, vintage sófasett sem minna á austurríska skíða­skála og svo frægu tómat­plönturnar sem eru miðja húmorsins alla daga.

Það verður engin svikinn af því að gista hjá Magnúsi, Hildi og Gudda í miðri paradís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur