Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Katrín: „Jón Gunnarsson lýgur!“

Jón Gunnarsson.
Jón Gunn­ars­son.

Lögfræðingurinn Katrín Odds­dóttir ritat sterka færslu á Facebook-síðu sinni, þar sem hún hjólar harkalega í dómsmálaráðherrra, Jón Gunnarsson.

Færsla Katrínar ber yfir­skriftina: JÓN GUNNARSSON LÝGUR!

„Í forsíðu­frétt Frétta­blaðsins kemur fram að Dómsmála­ráðherra segi að lögreglan hafi verið að „fram­fylgja skyldum“ með fyrirvara­lausum og vanvirðandi handtökum á flótta­fólkinu sem var sent til Grikk­lands í gær í ómannúðlegar aðstæður. Auk þess segir Jón Gunnarsson:

„Ég hef ekkert meira um þetta að segja, þessu símtali er lokið“ við blaða­manninn.

Ég kenndi Flóttamanna­rétt við lagadeild Háskólans í Reykjavík árum saman og skal hér fullyrða að stað­hæfing dómsmála­ráðherra um að það sé skylda lögreglu að fara í þessar aðgerðir er einfald­lega ósönn! Jón Gunnarsson lýgur.“

Katrín nefnir að „Ísland hefur alltaf rétt á að veita fólki vernd hér á landi, hvað þá viðkvæmum einstaklingum sem dvalist hafa hér árum saman og myndað hér tengsl. Í stað þess var þeim vísað á götuna á Grikk­landi, landinu sem við vitum að aðstæður flótta­fólks eru verstar í af öllum aðildar­ríkjum Dyflinarsamstarfsins. Í annað skipti á jafnmörgum dögum varð mér flökurt þegar ég las um þetta mál í grein á Kjarnanum.

Þessi framkvæmd er ólögmæt og sviptir fólkið sem í hlut á rétti til rétt­látrar máls­meðferðar fyrir dómi þar sem það getur ekki mætt fyrir dóminn og sagt sína hlið í máli sem verður flutt eftir örfáa daga í héraðs­dómi Reykja­víkur. Dómari málsins hafði komið því skýrt til skila við lögmann ríkisins að hann vildi að fólkið fengi að flytja vitnis­burði sína milli­liðalaust í aðal­meðferðinni.“

Katrín segir að „með því að brottvísa fólkinu nokkrum dögum fyrir þessa aðal­meðferð er dómsmála­ráðherra að grípa fram fyrir hendurnar á sjálfu dóms­valdinu í landinu. Á þessu ber ríkis­stjórnin ábyrgð. Ráðherrann fer með framkvæmda­vald og á að framkvæma vilja löggjafans. Í staðinn fyrir að gera það er Jón Gunnarsson á vegferð sem brýtur gegn stjórnar­skrár­vörðum mann­réttindum, lögum, meðalhófs­reglu og mannúðar­sjónarmiðum.“

Henni þykja svör dómsmála­ráðherra einkennast af hroka:

„Hrokinn sem einkennir svör Jóns sýnir að hann efast ekki um þessa vegferð sína. Alþingi ber eftirlits­skyldu með framkvæmda­valdinu. Að maður í stöðu dómsmála­ráðherra dirfist að hunsa vilja dómsins með þessum hætti er gríðar­lega alvarlegt og ég vona að Alþingi, og öll sem að þessu máli koma, hafi hugrekki til að þess að grípa í taumana og snúa þessari ólögmætu og hörmulegu ákvörðun við. Í öllu falli skal hér með fullyrt að þessi forkastanlega framkvæmd samræmist hvorki stjórnar­skrá né lögum og er þar af leiðandi ekki í mínu nafni!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning