Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Cardi B lögð inn á spítala í skyndi „Ekki hafa áhyggjur. Elska ykkur öll“

Cardi B
Cardi B Mynd: Trausti Hafsteinsson

Rapp­drottn­ingin Cardi B hefur nú opnað sig um heilsu­far­s­vanda­mál sín.

Innan við tveimur mán­uðum eftir að Cardi B fæddi þriðja barnið sem hún átti með fyrrum eig­in­manni sínum, Offset, afboð­aði hún sig ONE Musicfest-hátíð­ina í Atlanta, þar sem hún átti að koma fram, vegna þess að hún þurfti á bráðri lækna­að­stoð að halda.

Þremur dögum áður en hún átti að stíga á svið á ONE MucicFest þurfti „WAP“ rapp­ar­inn að afboða sig þar sem hún þurfti að leggj­ast inn á spít­ala vegna heilsu­brests.

„Mér þykir svo leið­in­legt að deila þessum fréttum,“ skrif­aði Cardi í skila­boðum sem hún deildi á Instagram-síðu sinni 23. októ­ber, „en ég hef verið á spít­al­anum að jafna mig eftir neyð­ar­til­vik síð­ustu tvo daga og ég mun ekki geta komið fram á ONE MusicFest.“

Og þó að hin 32 ára gamla kona hafi ekki gefið upp nákvæmar upp­lýs­ingar um ástand hennar, lýsti hún yfir mik­illi eft­ir­sjá yfir afboð­un­inni og sagði: „Hjarta mitt brestur yfir því að ég fái ekki að sjá aðdá­endur mína um helg­ina og ég vildi óska ​​þess að ég gæti verið þarna.“

Cardi bætti við: „Þakka ykkur fyrir skiln­ing­inn og ég kem aftur betri og sterk­ari fljót­lega. Ekki hafa áhyggjur. Elska ykkur öll.“

Í kjöl­far skila­boð­anna tjáði tals­maður ONE MusicFest sig þar sem hann studdi við ákvörðun Grammy-sig­ur­veg­ar­ans um að hætta við þátt­tök­una vegna „við­var­andi heilsu­far­s­vanda­mála“. Hátíðin end­ur­deildi færslu hennar á Instagram og skrif­aði í yfir­lýs­ingu: „Við skulum öll biðja fyrir fullum bata hennar! Við erum að vinna hörðum höndum að því að finna stað­geng­ill núna,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. „Meira um það bráðum.“

Samhliða því að jafna sig eftir óhugna­legt heilsu­far­s­vanda­mál hefur Cardi gengið í gegnum nokkrar aðrar stórar breyt­ingar í líf­inu upp á síðkastið. Hún tók á móti þriðja barn­inu sínu með fyrr­ver­andi eig­in­manni sínum, Offset, í sept­em­ber, aðeins einum mán­uði eftir að hún sótti um skilnað við Migos-með­lim­inn eftir sjö ára hjóna­band.

Og þó að sam­bands­slit þeirra hafi ekki gengið hnökra­laust, hefur „I Like It“ rapp­ar­inn – sem á einnig dótt­ur­ina Kulture, 6 ára og son­inn Wave, 3 ára, með Offset, haldið áfram að ein­beita sér að fram­tíð sinni sem þriggja barna móðir.

„Með hverjum enda­lokum kemur nýtt upp­haf!,“ skrif­aði Cardi í Instagram skila­boðum 1. ágúst áður en þriðja barnið kom í heim­inn. „Ég er svo þakk­lát fyrir að hafa deilt þessu tíma­bili með ykkur, þið hafið fært mér meiri ást, meira líf og umfram allt end­ur­nýjað kraft­inn minn! Minnti mig á að ég gæti fengið allt!“

Hún bætti við: „Þið hafið minnt mig á að ég þarf aldrei að velja á milli lífs­ins, ást­ar­innar og ástríðu minnar!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið