Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Skoðaði innihaldslýsinguna á hreindýrapaté í Krónunni: „Flokkast þetta nokkuð undir vörusvik?“

Krónan vildi slíta samstarfi við Wok On í fyrra
Krónan vildi slíta sam­starfi við Wok On í fyrra

Í fjölmennu samfélagi matar­unnenda á Facebook, Matartips!, fer nú fram umræða um hreindýrapaté sem meðlimur verslaði sér úti í búð. Verðið á kæfunni stóð eitthvað í viðkomandi sem ákvað í kjölfarið að skoða betur hvert væri innihald pakkningarinnar.

Og þá kom ýmislegt í ljós sem kemur fjölmörgum matar­unnendum í hópnum á óvart. Máls­hefjandi lýsir upplifuninni með þessum hætti:

„Mig langaði að smakka hreindýrapaté, kíkti á verðið og svona stykki var á 3600 krónur í Krónunni. Sem betur fer kíkti ég líka á innihalds­lýsingu….þetta ætti að heita hveitipaté með pálmaolíu og full af E efnum (16 samtals). Hreindýr er ekkert nema 7% í þessu. Mig langar að vita hvað er í þessu sem kostar 3600 krónur?! Hveiti? Olía? Öll þessi E? Ég mæli með að fylgjast vel með því hvað þið eruð að borga fyrir, það er verið að blekkja neytendur með flottum umbúðum og heiti á vörunni.“

Þessi mynd af hrein­dýrapaté birt­ist með færsl­unni þar sem sjá má inni­hald kæf­unnar. Smelltu á mynd­ina ef þú vilt stækka hana.

Eins og gefur að skilja eru margir meðlimir hópsins svekktir eftir þessa lýsingu á innihaldi hreindýra­kæfunnar. Þórhildur er sannarlega ein þeirra. „100% gæði en bara 7% hreindýr!, segir hún.

Margrét er heldur ekki sátt. „Kjúklinga­lifur, svínakjöt, svínafita, og pínulítið af hreindýra­kjöti. Fullt af allskonar óhollustu og efnum. Og kalla þetta svo “hreindýrapaté”. Þetta verðlag á þessu er fáránlegt,“ segir Margrét ákveðin.

Birgir tekur í sama streng. „Það er meiri kjúklinga­lifur en hreindýr í þessu… Flokkast þetta nokkuð undir vörusvik?,“ spyr hann. Og Arnar nokkur er líka afar hissa. „Vá… 16 E-efni, sykur, gelatín, pálmaolía, pálmafita, rjómalíki, ofl. Hvernig enduðum við á Vestur­löndum á þessum stað? Hvernig kemst svona „matur“ í gegnum matvæla­eftirlit?,“ spyr Arnar. 

Karl reynir að klóra aðeins í bakkann. „Ég er á engan hátt að verja þessa vöru en ég hef unnið mikið með villibráð og maður vinnur alltaf með fylliefni eins og svínafitu og kjúklinga­lifur þar sem villibráðin er bæði yfirleitt of þurr og of sterk í bragði fyrir flesta,“ segir Karl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning